Ægir - 01.11.1998, Síða 27
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Sjómannasamband íslands:
r
Aróður rekinn gegn
Kvótaþinginu
Aþingi Sjómannasambands Is-
lands, sem haldið var fyrr í mán-
uðinum, urðu miklar umrœður um
Kvótaþing og Verðlagsstofu skipta-
verðs, en þessum stofnunum var kom-
ið á fót í kjölfar kjarasamninga sjó-
manna og útvegsmanna síðastliðið
vor. Sjómenn segja útvegsmenn reka
áróðurgegn Kvótaþinginu með því að
halda því fram að það leiði afsér at-
vinnuleysi sjómanna.
í afgreiðslu þingsins um málið lýsti
Sjómannasamband íslands fullum
stuðningi við Kvótaþingið, sem og
Verðlagsstofu, og segir í samþykkt um
málið að vonandi nái tilraun stjórn-
valda til að koma verðlagningu á sjáv-
arfangi í eðlilegt horf tilætluðum ár-
angri. Hvað varðar Verðlagsstofuna þá
eru sjómenn þeirrar skoðunar að hún
leysi vandann aðeins tímabundið en
endanleg lausn varðandi eðlilega verð-
myndun á afla upp úr sjó fáist ekki fyrr
en allur afli verði seldur á fiskmarkaði.
í ályktun um Kvótaþingið er bent á
að úthlutaðar veiðiheimildir minnki
ekki þó viðskipti með aflamark fari um
Kvótaþing.
„Útgerðarmenn eru eftir sem áður
frjálsir að því að selja og kaupa afla-
mark, og á því hið svokallaða hagræði
af því að flytja veiðiheimildir milli
skipa að vera óbreytt. Útvegsmenn
eiga hins vegar erfiðara með að láta
sjómenn taka þátt í aflamarkskaupum
útgerða sinna vegna Kvótaþingsins og
er það vel. Eftir sem áður þarf jafn
marga sjómenn til að veiða þann afla
sem til skiptanna er," segir í samþykkt
þings Sjómannasambands íslands um
kvótaþingið.
Sjómannasamband íslands styður Kvótaþing heilshugar en útgerðarmenn hafa gagnrýnt
það harkalega.
• Algjörlega ryk- og vatnsþéttir
• Engin móða við -40°C til 80°C og við allt að 95% raka.
• Með eða án innbyggðs áttavita.
• Lífstíðareign með allt að 30 ára ábyrgð.
. ‘dtr- riá
• Einstaklega bjartir og skarpir („auto focus").
Brimrúnehf *
STEINER
G E R M A N Y
SJÓNAUKAR
Hólmaslóð 4 • 101 Reykjavík • Sími 561 0160 • Fax 561 0163
MSilR 27