Ægir - 01.02.1999, Qupperneq 51
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Forráðamenn HB á Akranesi og skipstjórar Óia í Sandgerði við komu skipsins til
heimahafnar. Frá vinstri: Sturlaugur Sturlaugsson, aðstoðarframkvæmdastjóri,
Gunnlaugur Jónsson, skipstjóri, Marteinn Einarsson, skipstjóri og Haraldur Sturlaugsson,
framkvcemdastjóri.
ingur dælanna um 210 bör.
Vindur á efra þilfari
Snurpuspilin eru tvö af gerðinni
TWS50300, togkraftur 42 tonn. Neta-
tromla af gerðinni DN 50,0B, 50 tonn.
Kapstan á afturþilfari af gerðinni CF
600. Akkerisvinda af gerðinni AVW
1200, 6 tonn, með tveimur útkúplan-
legum keðjuskífum og tveimur troml-
um. Pokaendavinda og pokavinda,
hvor 15 tonn. Slöngutromla fyrir fiski-
dælu af gerðinni STH 01.
Kranar, blakkir o.fl.
Skipið er búið þremur krönum frá
Triplex. Löndunarkraninn er 50 tonn-
metrar, búinn spili. Á afturþilfari er
nótaleggjari, gerð NK-50 og á framþil-
fari er krani fyrir fiskidælu. Nótablökk-
in er þriggja kefla frá Triplex af gerð-
inni Jumbo 850/500 með 25 tonna
togkraft.
Vélbúnaður
Umfangsmikill vélbúnaður er í skip-
inu. Uppsett afl skipsins er 4730 kW
sem skiptist milli 3440 kW aðalvélar
og tveggja hjálparvéla, sem hvor um
sig er 350 kW. Vélarúmið er hannað
og útbúið sem „vaktfrítt vélarúm" og
er átt við að viðvera vélstjóra í véla-
rúmi sé takmörkuð við afmarkaðan
tíma.
Aðalvél og drifbúnaður
Aðalvél skipsins er frá Deutz MWM,
gerð SBV 16M 628, 16 strokka fjór-
gengissvél með tveimur forþjöppum
og eftirkælingu. Afl vélarinnar 3440
kW (4674 hö) við 1000 sn/mín. Vélin
er tengd Volda skrúfugír af gerðinni
ACG 85/750 með aflúttaki fyrir ás-
rafal. Niðurgírun skrúfunnar er 5,95 :
1 og snýst skrúfan 168 sn/mín. Skrúf-
an er fjögurra blaða skiptiskrúfa, 3600
mm í þvermál og í föstum skrúfu-
hring. Ásrafalinn er frá Stamford, 1600
kVA.
Stýrisbúnaður
Stýrisblaðið og stýrisvélin eru frá Ul-
stein Tenfjord af gerðinni SR 642 240,
vökvaknúin og rafstýrð. í skipinu eru
rafknúnar hliðarskrúfur, 350 hestafla
bógskrúfa og 550 hestafla hliðarskrúfa
að aftan, báðar frá Brunvoll og tengd-
ar sjálfstýringunni. Þvermál hliðar-
skrúfanna er l,225m og snúninghraði
þeirra er 415 sn/mín.
Hjálparvélar
Ljósavéiarnar eru tvær í vélarúmi fyrir
raforkuframleiðslu, báðar frá Volvo
Penta af gerðinni TAMD 162 C, 476
hö við 1500 sn/mín. Rafalar vélanna
eru frá Stamford 415 kVA. Vélarnar
eru ræstar með rafræsi frá 24V DC 160
Ah ræsikerfi.
Rafkerfi
Rafkerfi skipsins er 3 x 380 V, 50 Hz
fyrir rafmótora og stærri notendur.
Fyrir ljós og almenna notkun í íbúð-
um er 220 V kerfi um 380/220 V
spenna. Ljósavélar eru samkeyranleg-
ar. 125A/220 VAC landtenging er um
borð sem fyrirhugað er að breyta í 380
V.
Helstu birgiar og verktakar
AS Eidsvik Skipsbyggeri, Noregi
Northern Shipyard, Póllandi skrokksmíði
Vik og Sandvik
Verkfræðistofan Fengur öryggisplan og ýmsar breytingar
Flokkunarfélag Det Norske Veritas
Málning hf Jotun skipamálning
R. Sigmundsson þjónusta við sónar ofl.
Radíómiðun
Sínus
Rafvör
Þorgeir og Ellert stálsmíði
HB þjónustudeild ýmis frégangur ofl.
mm 5i