Ægir

Volume

Ægir - 01.12.1999, Page 25

Ægir - 01.12.1999, Page 25
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI heldur hafði hún kannki ekki síður áhrif á annan stórleik ársins í við- skiptalífinu, þ.e. sameiningu íslenskra sjávarafurða hf. og SÍF hf. SH og ÍS voru fyrirfram liklegri til samruna en hvað sem framtíðin ber í skauti sér þá var uppstokkun í sölusamtökunum tímabær og hasarinn í kringum kaupin á hluta í SH var snjókornið sem byrjaði að rúlla. ÚA sannar tilverurétt landvinnslunnar í öðru sæti á áðurnefndum lista Ægis er Útgerðarfélag Akureyringa hf. Fyrir- tækið þykir hafa tekið stakkaskiptum undir stjórn Guðbrands Sigurðssonar og sýnt fram á hið illmögulega, þ.e. að landvinnsla eigi sér framtíð á Islandi. Sterk kvótastaða ÚA í þorski hefur komið fyrirtækinu vel þegar aukning hefur orðið á þorkkvóta en engu að síður benda margir á að ÚA styrki sína stöðu með því að vinna markvisst að nýsköpun í sinni framleiðslu og vöruþróun, m.a. með því að opna þró- unarsetur með tveimur matvælafræð- ingum í starfi. Önnur landvinnslufyrir- tæki eigi eftir að taka ÚA sér til fyrir- myndar á þessu sviði í framtíðinni enda verði meiri peningar ekki sóttir í landvinnsluna nema með vöruþróun og framhaldsvinnslu afurða. Milliuppgjör ÚA er talið hafa gefið fyrirheit um góða afkomu á árinu í heild. Þá er sameining-við Jökul talin styrkja fyrirtækið og sömu áhrif verði ef ÚA sameinist Hólmadrangi hf., eins og raddir hafa verið uppi um á síðustu vikum ársins. Þorbirninum vel stýrt Þorbjörn hf. í Grindavík kemst í þriðja sætið á listanum. Sumir viðmælenda Ægis segja einkenni á fyrirtækinu, eins og svo mörgum öðrum í fremstu röð, að því sé frábærlega stjórnað. Milliupp- gjör sýndi 187 milljóna króna hagnað á fyrstu sex mánuðum ársins og sýndu allar rekstrareiningar innan fyrirtækis- ins hagnað. Talið er að fyrirtækið muni Hin eftirtektarverðu Þau voru eðlilega mörg fyrirtækin sem nefnd voru til sögunnar í athugun Ægis og umdeilanlegt er hvenær hægt er að tala um sjávarútvegsfyrirtæki og hvenær ekki. Hér á eftir verða nefnd nokkur fyrirtæki sem nefnd voru í könnuninni og full ástæða til að gefa gaum í upprifjun ársins. Eimskip/Burðarás Burðarás, dótturfyrirtæki Eimskips, komst oft í fréttir á árinu enda styrkti það víða stöðu sína f sjávarútveginum. Til að mynda í UA, HB og Síldarvinnslunni. Jafnvel var talið að sameining þessara þriggja fyrirtækja yrði fyrr en síðar en ártalið 2000 mun renna upp án þess. Hraðfrystihúsið - Gunnvör „Eitt af þeim áhugaverðustu,“ segja margir um vestfirska risann. Bent er á að fyrirtækið hafi allt til brunns að bera, sterka eigna- og kvótasamsetningu, traustan mann í starfi framkvæmdastjóra þar sem Einar Valur Kristjánsson er, þrautreyndan mann í stjórnarformennskunni þar sem er Þorsteinn Vilhelms- son, Samherjamaður fyrrverandi, og loks megi benda á traustan eigendahóp. Vísir gerir það gott En það eru fleiri fyrirtæki verðug viðurkenningar en þau sem eru á hlutabréfamarkaði. í þeim flokki nefna langflestir fjölskyldufyrirtækið Vísi í Grindavík til sögunnar. Þetta stærsta línuútgerðarfyrirtæki landsins verður með hverju árinu sterkara og virðist eflast við hvert nýtt verkefni, kannski fyrst og fremst vegna þess að í þau er ráðist af fyrirhyggju og skynsemi. Bent er á viðsnúning í rekstri Búlandstinds á Djúpavogi sem var vægast sagt í bullandi vandræðum áður en Páll í Vísi og fjölskylda komu að málum í upphafi árs. Sömuleiðis má benda á aðkomu Vísis að fiskvinnslunni Fjölni á Þingeyri. sem sögð er fara þannig af stað að ekki sé ástæða til annars en ætla að Fjölnir geti orðið til langrar og farsællar framtíðar á Þingeyri. Áhugi fyrir FISK Fiskiðjan Skagfirðingur stendur utan hlutabréfamarkaðar og þrátt fyrir að ekki hafi verið mikill ljómi fyrir rekstrinum fyrir fáeinum árum þá hefur fyrirtækið rétt heldur hressilega úr kútnum. Markaðurinn bíður greinilega eftir innkomu FISK en talið er nauðsynlegt að fyrirtækið gangi fyrst í gegnum sameiningu við annað sjávarútvegsfyrirtæki til að styrkja sig og stækka, auk heldur sem markaðsmenn benda á að Kaupfélag Skagfirðinga þurfi að slaka á taumhaldi sínu á FISK til að gera það áhugaverðara. Sameining ársins Sameining SÍF og ÍS er tvímælalaust sameining ársins. Með því verður til eitt framsæknasta útflutningsfyrirtæki landsins og fyrirtæki sem spannar nær alla flóru íslenskra sjávarafurða. Stjórnendur félagsins þykja einnig traustvekjandi og hafi sannað það að íslensk sjávarúfvegsfyrirtæki eigi að víkka sjóndeildarhringinn. Næsta ár er talið verða prófsteinninn fyrir hið nýuppstokkaða SÍF. NGÍR 25

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.