Ægir

Árgangur

Ægir - 01.05.2000, Blaðsíða 21

Ægir - 01.05.2000, Blaðsíða 21
NÝTT HAFRANNSÓKNASKIPHBH Útgerðarmenn fagna af heilum hug nýjum Árna Friðrikssyni: Meiri fiskur en sjór í hafinu! Útvegsmenn lögðu sitt af mörkunum til þessa nýja og glæsilega skips, og Kristján Ragnarsson var kampakátur við komu þess, „enda er öflugt rannsóknaskip forsendan fyrir því að hægt sé að afla enn meiri upplýsinga um auðlindina og veita okkur sem besta ráðgjöf." „Þetta er í raun og veru grundvöllurinn fyrir því að við getum stundað hagkvæm- ar veiðar úr sjálfbærum fiskistofnum." Utgerðarmenn og skipstjórnendur eru iðulega á öndverðum meiði við fiskifræð- inga og telja gjarnan að mun meira sé af fiski í sjónum en fiskifræðingarnir. Sum- ir ganga meira að segja það langt að fúll- yrða að bestu fræðingarnir séu þeir sem hafa stundað sjóinn árum og áratugum saman. Kristján tekur undir þetta að Kristján Ragnarsson, formaóur LÍÚ, segir nýtt hafrannsóknaskip mikiivægt fyrir framtið islen- sks sjávarútvegs. Mynd: Sverrir Jónsson vissu marki og segir rannsóknir og mat á stærð fiskistofna engin 100% vísindi. „Engu að síður verðum við að gera okkur grein fyrir því að fátt, ef þá nokkuð, skiptir þjóðina jafn mikiu máli og eðlileg nýting auðlindarinnar og því er nauðsyn- legt að taka verulegt mark á því sem okk- ar færu vísindamenn leggja til. Einmitt þess vegna, og til að brúa að nokkru leyti bilið á milli okkar og vísindaumhverfis- ins, höfum við hjá LIU ráðið vísindamann til starfa. I raun og veru er mun minni ágreining- ur milli sjómanna og vísindamanna hér á landi miðað við það sem gengur og gerist erlendis, þar eru þessir hópar yfirlýstir andstæðingar. En sem betur fer er eykst jafnt og þétt skilningur útgerðarinnar og sjómannastéttarinnar á nauðsyn rann- sókna og réttrar nýtingar fiskistofnanna. Þó ennþá fyrirfinnist menn sem segjast vita sínu viti, eins og ónefndur kunningi minn fyrir vestan. Sá hringdi í mig um daginn og fullyrti að það væri meira af fiski en sjó í hafinu út af Vestfjörðum!" Árni Mathiesen, sjávarútvegsráðherra: „Arðbær fjárfesting" Árni Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, segir nýja hafrannsóknaskipið afar arð- bæra þ'árfestingu fyrir ísienska þjóðar- búið. „Reyndar er ekki til neitt módei til að reikna út arðsemina en ég er fuLI- viss um að þetta skip verður fljótt að borga sig upp. Ég vænti þess að við fáum mun betri og ítarlegri upplýsingar um auólindina okkar en áður. Nú getum við aflaó upplýsinga um stærri svæói og rannsakaó á meira dýpi en við höfum áður getað. Með nýjum og itariegri upplýsingum eiga visindamennirnir á Hafrannsóknar- stofnun enn betri möguleika á því að meta stofnstærðir og ástand auðlindar- innar og ég yrði ekki hissa þótt við víð- tækari rannsóknir í framtíðinni muni auka við auðlindina og veiði muni aukast á tegundum sem við höfum lítið eða ekkert nýtt." Árni Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, Jóhann Siguijónsson, forstjóri Hafró, Brynjólfur Bjarnason, stjórnarformaður Hafró og Guómundur Bjarnason, skipstjóri, í brú Árna Friðrikssonar RE 200. Mynd: Sverrir Jónsson 21 ■
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.