Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.2000, Blaðsíða 14

Ægir - 01.09.2000, Blaðsíða 14
ERLENT Styrkir Evrópusambands til fiskveiða skaðlegir Alþjóða viðskiptamálastofnunin telur að stuðningur ES við fiskveiðar skaði sam- keppni. Talið er að stofnunin muni rök- styðja álit sitt með því að fiskiskipafloti ES landanna sé of stór miðað við fiski- stofnana. Auk þess er búist við að stofn- unin gagnrýni styrkveitingar til endur- smíði og nýsmíði skipa, endurnýjunar búnaðar, eldsneytiskaupa og styrki vegna hækkunar verðlags. Samkvæmt norska blaðinu Fiskeritid- ende má ætla að kostnaður ES vegna fisk- veiðistefnu sinnar nemi nú um 60 millj- örðum íslenskra króna, en Evrópuráðið hefur fuilan hug á því að lækka hann. Það veldur vandræðum að stuðningur við fiskveiðar er ekki eins vel skilgreind- ur og stuðningur við landbúnaðinn. Skil- greininguna þarf að endurskoða og rétt- læta bæði stjórnmálalega og félagslega. Ekki er nákvæmlega vitað að hve miklu leyti sjómenn njóta góðs af því fé sem ES leggur til fiskveiða í einstökum löndum, en ljóst er að Portúgal, og í enn ríkari mæli Spánn, eru orðin mjög háð heimildum til veiða á miðum sem aðrar þjóðir ráða. Innan ES eru uppi raddir um að sjá þurfi til þess að féð nýtist sem allra best og jafnvel að útgerðir í þeim löndum sem styrk fá, greiði sjálfar hluta af gjaldinu fyrir veiðiheimildir utan heimamiða, sem alls nemur meira en þriðjungi af því fé sem ætlað er til styrktar sjávarútvegi í sambandslöndunum. Stór hluti fjárins rennur reyndar sem beinn þróunarstyrkur til þeirra landa sem skemmst eru á veg komin í veiðum og vinnslu sjávarafurða. Geta hákarlar dáið úr krabbameini? í mörgum löndum segir þjóðtrúin að hákarlar geti ekki fengió krabbamein. Þetta hefur verið notað til að auglýsa hákarialýsi sem vörn gegn sjúkdómn- um. Rannsóknir amerisks visindamanns, John C. Harshbarger við Georgs Was- hington University hafa ieitt i Ljós að bijóskfiskar, þar á meðal hákariar og skötur, geta fengið minnst 40 tegundir krabbameina. Tvö þeirra hafa ekki fundist fyrr, nýrnakrabbamein og bióð- krabbamein, í tveimur tegundum há- karis. Harshbarger trúir þvi ekki að neysia hákaris og skötu minnki Líkur á því að menn fái krabbamein, og segir að það sé áiika gáfuiegt og borða kanínukjöt tii að geta hiaupið hraóar. Niðurstöður rannsókna þessara hafa kaiiað á hörð viðbrögð þeirra sem trúa þvr' að hákarisneysia minnki Líkur á krabbameini í mönnum. WiLLiam Lane er höfundur bókarinnar „Enginn hákari fær krabbamein". Hann segir það hárrétt hjá Harshbarger að hákarlar geti fengið krabbamein og hann hafi enda skrifaó það í bókinni en útgefandinn hafi tekið þaó upp hjá sjálfum sér aó stytta nafn hennar, sem frá sinni hendi hafi verið „Næstum eng- inn hákarl fær krabbamein". Lane segir þaó aóaiatriðió að tíðni sjúkdómsins sé mikiu minni meóai hákarla en nokkurr- ar annarrar dýrategundar. Um það efast hins vegar Harshbarger og bendir á að það hafi aidrei verið rannsakað á kerf- isbundinn hátt og því ósannað mái. Mynd: Þorgeir Baldursson Samkvæmt norska blaðinu Fiskeritidende má ætla aó kostnaður ES vegna fiskveiðistefnu sinnar nemi nú um 60 milljörðum islenskra króna. VIÐ ÓSKUM ÚTGERÐ 0G AHÖFN VILHELMS ÞORSTEINSSONAR EA-11 TIL HAMINGJU MEÐ ÞETTA GLÆSILEGA SKIP SEM M.A. ER MEÐ SIGMUNDS SJÁLVIRKAN SLEPPIBÚNAÐ FYRIR GÚMMÍBJÖRGUNARBÁTA Vilhelm Þorsteinsson EA-11 ^r,,ra^ apg: ICE FBESH ÞOR ehf vélaverkstæði Pósthólf 133 sí 902 Vestmannaeyjar ES ÚTGERÐARMENN Sími 481-2111 LEITIÐ fax 481-2918 TILBOÐA Email : thorvel@isholf.is

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.