Ægir - 01.09.2000, Blaðsíða 15
FRÉTTIR
Haraldur Böðvarsson hf.
skilar milliuppgjöri:
Reksturínn á
góðu róli
Haraldur Böðvarsson hf. var rekinn með
60 milljóna króna hagnaði á fyrri helm-
ingi ársins 2000. Þetta er yfir 80%
minni hagnaður en á sama tíma í fyrra,
þegar félagið var rekið með 361 milljón
króna hagnaði, en árangurinn er engu að
síður talinn viðunandi.
Rekstrartekjur HB á fyrri hluta ársins
voru alls 2.389 milljónir króna, saman-
borið við 2.034 milljónir í fyrra. Rekstr-
argjöld hækkuðu úr 1.704 milljónum í
1.883 milljónir og hagnaður fyrir af-
skriftir varð því 506 milljónir króna
samanborið við 330 milljónir í fyrra,
sem er aukning um 53%.
Að teknu tilliti til skatta og óreglu-
legra liða var hagnaður tímabilsins 60
milljónir króna.
Samkvæmt upplýsingum frá fyrirtæk-
inu jukust rekstrartekjur útgerðar um
400 milljónir á meðan rekstrartekjur
fiskvinnslu drógust saman um tæpar 200
milljónir. Skýring á þessu er einfaldlega
sú að aukin áhersla er nú á sjófrystingu
hjá HB í kjölfar kaupa á frystitogaranum
Helgu Maríu. Fyrir átti fyrirtækið frysti-
skipið Höfrung III. Afli skipanna varð á
tímabilinu um 7.700 tonn en afli fersk-
fisktogaranna á fyrstu sex mánuðum varð
um 4.500 tonn. Nótaskipin öfluðu 86
þúsund tonna, eða nokkru meira en
fyrstu sex mánuði ársins 1999-
Nýr markaðsstjóri
hjá Sæplasti hf.
Þann 1. júlí 2000 var starfsemi
Sæplasts hf. á íslandi skipt í tvennt. Þá
tók til starfa nýtt dótturfélag, SæpLast
DaLvík ehf., sem hefur meó höndum
rekstur verksmiðju féLagsins á Dalvík.
Frá sama tíma hefur SæpLast hf. verið
rekið sem móðurféLag sem hefur yfir-
umsjón með rekstri dótturféLaganna á
ísLandi, í Kanada, Noregi og á IndLandi.
Nú hefur Sigurður Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri dótturfyrirtækis SæpLasts
í Kanada, verið ráðinn markaðsstjóri
móðurféLagsins og tók við því starfi
þann 1. september sL. HLutverk hans
verður að samræma markaðsstarf aLlra
dótturfyrirtækjanna og tryggja að þeir
möguleikar sem búa í hinum einstöku
fyrirtækjum verði nýttir til fulLs í sam-
stæðunni.
ViJhelm Porst
*
mmm ea j j
Óskum eiganda og
áhöfn til hamingju
ÍPIillP
AÁr'^tt
Um borð er:
GLORIA
Bylting í flottrollum
POLY-ICE
Toghlerar
DYNEX'
Sterkara en stál
MAGNET
Magnadur hnútastyrkur
HAMPIÐJAN
heimasíða: www.hampidjan.is
Bildshofði 9 110 Reykjavík S(mi:530 3300 Fax:530 3309
Netfang:hampidjan@hampidjan.is
Auglýsandi!
Talaðu við þinn markhóp í gegnum okkur!
Auglýsingar í síma 898 8022