Ægir - 01.09.2000, Page 42
RITDÓMUR
Sterk skilaboð að utan
- lítil viðbrögð hér heima
Nokkur orð um bókina Hið sanna ástand heimsins
Þeirri skoðun hefur vaxið ásmegin
síðustu áratugi, einkum á Vestur-
löndum, að vegna ofnýtingar náttúru-
gæða, mengunar og misréttis manna á
meðal, væri mannskepnan á góðri leið
með að útrýma sjálfri sér. - En er þessi
sýn á rökum reist?
Fyrr í sumar kom út athyglisverð bók
á vegum Fiskifélagsútgáfunnar ehf., Hið
sanna ástand heimsins eftir dr. Björn
Lomborg, lektor við Kaupmannahafnar-
háskóla. Þar er fullyrt að flestar,
síendurteknar kenningar um heim í
hættu séu áróður og í besta falli
misskilningur fræðimanna og at-
vinnumanna í umhverfismálum. Vissu-
lega stór orð sem valdið hafa gríðar-
legum úlfaþyt erlendis en litlum við-
brögðum hér heima, hvað sem veldur.
Höfundurinn áréttar í bók sinni að
margt sé enn óunnið í umhverfismálum
og ástandið engan veginn viðunandi,
einkum vegna misréttis og mis-
að alhr sem ekki dansa eftir þeirra pipu
séu taldir umhverfissóðar. Er mál að
linni.
I upplýsingasamfélagi nútímans eru
miklir möguleikar á að skapa umræðu
sem máli skiptir. Með aðstoð fjölmiðla
getur fólk með ólík viðhorf mæst svo úr
verði deigla frjórrar umræðu og
ígrundaðra ákvarðana. Þetta er grund-
völlur lýðræðisins og forsenda þess að við
getum talist vera þegnar í upplýstu
samfélagi. Hins vegar verðum við um
leið að leggja þá skyldu á herðar
vísindamanna og fjölmiðlafólks að við
fáum sannleikann upp á borðið en ekki
pantaðar niðurstöður sem kunna að selja
blöð eða bera uppi fjárhag sjálfskipaðra
náttúruverndarsamtaka.
Bókarhöfundur geldur varhug við þess
háttar fyrirbærum, í hvaða líki sem þau
birtast. Hafi hann þökk fyrir athyglis-
verða bók sem enginn áhugamaður um
mannlegt samfélag ætti að láta framhjá
sér fara. -vh.
skiptingar gæða heimsins. Það breyti þó
ekki því að ástandið fari sífellt batnandi:
Vatnið sé betra og aðgengilegt fleirum
en áður, matvælaframleiðsla í heiminum
aukist ár frá ári, æ færri jarðarbúa svelti
þrátt fyrir íbúafjölgun, skógar fari
stækkandi, hagvöxtur um alla jörð fari
vaxandi, útrýming dýrategunda sé minni
en áður og mengun lofts og sjávar fari
minnkandi. Höfundurinn bendir t.d. á
að meðalaldur jarðarbúa árið 1900 hafi
verið 30 ár en sé núna tæplega 70 ár. Er
það til vitnis um að heimur versnandi
fari?
Vissulega hefur barátta umhverfis-
verndarsinna sl. tvo áratugi skilað
miklum árangri og fullyrða má að ástand
heimsins væri verra ef hún hefði ekki
verið háð. En þetta nýja stöðumat hins
danska fræðimanns kallar hins vegar á
aðrar spurningar hér heima eins og hvort
ástæða sé til að efast um trúverðug-
leikann í málflutningi þeirra sem berjast
BJORIU LOMBORG
HIÐ
SANNA
Á S T A N D
HEJMSINS
*' . jrte-
' r., < /t \r ■
gegn hvalveiðum á íslandsmiðum,
starfrækslu Kísiliðjunnar við Mývatn eða
virkjunaráformum norðan Vatnajökuls,
svo fáein dæmi séu nefnd? Stundum
hefur manni a.m.k. fundist sem þeir telji
sig hafa prókúrurétt á náttúruvernd og