Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1931, Page 73
RITSAFNIÐ FULLGERT
Sesarea.
Órígenes mun vera mesti biblíufræðingur, sem nokkru
sinni hefir uppi verið, og auk þess var liann nokkurnveginn
fullnuma í öllum þeim visindum, sem þá viðgengust í heim-
inum. Það var því ekki furða þó að rannsóknir hans á rit-
safninu markaði nokkurveginn leiðina, sem farin yrði.
Eins og áður er getið flæmdist Órígenes frá Alexandríu og
eignaðist þá heimili í Sesareu, á vesturströnd Palestínu. Hafði
Heródes mikli látið reisa horg þessa, og stóð hún á landamær-
unum milli Galíleu og Samaríu, spölkorn fjæir sunnan hinn
fræga Karmelliöfða. Þangað fór nú Órígenes með hækur sín-
ar allar og liélt starfi sínu áfram stanzlaust. Lagði hann með
þessu grundvöllinn að þeim miklu álirifum, sem þessi hær
hafði á úlhreiðslu ritningarinnar og viðliald textans. Verður
nánar vikið að því i samhandi við sögu textans. En hér nægir
að geta þess, að maður einn, að nafni Pamfilus, er elskaði
Órígenes og dáði liann, ágætismaður hinn mesti i hvivetna,
varði kröftum sínum öllum til þess, að auka og hæta bóka-
safn safnaðarins. Er sennilegt, að Órígenes hafi verið húinn
að leggja grundvöll að því, og' víst er um það, að rit Órígenes-
ar voru þar saman komin öll. Því miður dó Pamfilus píslar-
vættisdauða, ungur að aldri, árið 309, en svo mikið orð fór af
safni lians og þeirri vandvirkni, sem liann lét Ijeita við afrit-
un hiblíuhandrita, að enn eru til handrit, þar sem þess er get-
ið, að þau hafi verið horin saman við handrit Pamfilusar i
Sesareu. Og á einstaka stað er sagt að handritið sé borið sam-
an við handrit „ritað með hans eigin hendi“, og sést af því, að
Pamfilus hefir sjálfur unnið að því, að rita biblíuhandrit.
Þetta ailt sýnir, að handrit þau, sem í Sesareu voru, þóttu
hera af öðrum og þá hefir auðvitað verið tekið sérstakt tillit
til þeirra skoðana á ritsafninu, sem komu frá þessari borg.
10