Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1933, Blaðsíða 64
62
17. gr.
Allir vinningar verða greiddir án nokkurs frádráttar, þó þannig,
að sá, sem vinning hlýtur, er skyldur til þess að kaupa hlut jafnstór-
an (heilan, hálfan eða fjórðung) í öllum þeim flokkum, sem eftir
eru á árinu, og verður andvirði hlutarins dregið frá vinningnum og
gefinn út ársmiði fyrir. Ef vinningur fellur á ársmiða, verður ekki
um neinn frádrátt að ræða.
Sá, sem hlýtur vinning í 10. flokki, skal þó skyldur til þess að
kaupa hlut jafnstóran hinum, sem hann vann á, í 1. flokki næsta árs,
og skal kaupverðið dregið frá vinningnum.
Samkvæmt lögum um stofnun happdrættis fyrir ísland skal ekki
taka tillit til vinninga í happdrættinu við útreikning tekjuskatts eða
aukaútsvars það ár, sem vinningarnir falla.
Umboðsmönnum er bannað að svara fyrirspurnum, hvort heldur
eru frá almannastofnunum eða öðrum, um eigendur vinninga í happ-
drættinu, og skal beina öllum slíkum fyrirspurnum til stjórnar happ-
drættisins.
18. gr.
Ef vinnings er ekki vitjað, áður en tí mánuðir eru liðnir frá
drætti þess flokks, sem vinningurinn féll í, verður hann eign happ-
drættisins.
Fjármálaráðuneytið, 2ö. sept. 1933.
Ásgeir Ásgeirsson.
Páll Eggert Ólason.