Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1933, Blaðsíða 29
25
þátt í ráðstöfunum gagnvart öðrum ríkjujn til verndar friði
samkvæmt 16. og 17. gr. og til að starfa að ýmsum máluin
öðrum, er í öðrum greinum sáttmálans segir. En þegar þess-
um málefnum lýkur, lieldur liver meðlimur bandalagsins
atliafnafrelsi sínu. Hann gerir samninga við önnur ríki og'
rekur önnur utanríkismál sín eftir sem áður, og hann ræð-
ur innanríkismálum sínum óhindrað. Hann má að eins ekki
reka þessi mál svo, að í bága komi við skuldbindingar hans
við Þjóðabandalagið, t. d. ekki fara út fyrir þau mörk, sem
lionum hafa verið sett um lierbúnað. Bandalagið hefur enga
lieimild til að koma fram fvrir meðlimi sína út á við né setja
þeim reglur um meðferð innanlandsmála. Af öllu þessu
virðist auðsætt, að þjóðabandalagið er ekkert yfirríki.
II. Það er í rauninni hættulegt að búa til frá byrjun eitt-
iivert liugtak, er Þjóðabandalagið eigi að komast undir, eða
að taka því eitthvert af áður þekktum þjóðréttarhugtökum,
og álvkta svo út frá þeim heitum eða hugtökum, að um
Þjóðabandalagið gildi þessar eða hinar reglur. Hitt er held-
ur, að rannsaka verður, hvernig ástatt sé um Þjóðabandalag-
ið samkvæmt þeim reglum, sem um það eru settar í sáttmál-
anum, og eftir því, hvernig það liefur starfað í verki og fram-
kvæmd. I þessu sambandi verður því bæði að athuga tilvist
þess inn á við og út á við, eins og sáttmálinn ætlast til, að hún
verði, og eins og hún liefur orðið í framkvæmdinni.
a) Þjóðabandalagið liefur stjórnarvökl sín, starfsmenn og
starfhýsi o. s. frv. fyrir sig. Þing þess og ráð tekur þær á-
kvarðanir, er varða skipulag þess og stjórn, innan takmarka
sáttmálans og eftir því, sem verksvið þess hefur skapazt i
framkvæmdinni. Haagdómurinn, vinnumáladeildin og fjölda
margar aðrar bjálparstofnanir og nefndir bafa verið settar
á stofn undir forsjá bandalagsins, eða sem liluti af því.
Stjórnarvöld þess ákveða útgjöld þess og tekjur, reiknings-
færslu og reikninga endurskoðun, ráða starfsmenn þess og
ákveða kjör þeirra, kaupa handa því eignir eða b}rggja o. s.
frv. Félagar bandalagsins iiafa engin bein afskipti af þessum
efnum. Þeir eru bundnir við það, sem stjórnarvöld banda-
lagsins samþykkja í þessum efnum. Þeim er t. d. vafalaust
skvlt að veita það fé, er samkvæmt ákvörðun bandalagsþings-
ins skal greiða. Þeir geta að eins haft áhrif á slíkar ráðstafanir
fyrir milligöngu fulltrúa sinna í ráði og á þingi bandalags-
nis. Það, sem bandalagið ákveður sjálft að gera innan verka-
4