Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1933, Blaðsíða 37
33
styrjöld, þá mundi liarðræðum þeim, er 1(5 gr. segir, sjálfsagt
einungis verða beitt gagnvart liinum.
Fyrirmæli 18.—20. gr. sáttmálans um milliríkjasamninga
geta og snert aðilja, sem ekki eru í bandalaginu. Það er fvrst
og fremst talið, að þeir geti látið skrásetja samninga, sem
þeir gera við önnur ríki, livort sem þau eru í bandalaginu eða
ekki. Þetta er liallkvæmt, með því að það miðar til þess, að
bandalagið geti því betur fylgzt með því, er gerist í skiptum
ríkja milli. Ákvæði 18. gr. banna meðlimum bandalagsins að
gera nokkurn samning við önnur riki, er bindandi verði fyrr
en liann hefur verið skrásettur samkvæmt sömu grein. Þetta
ákvæði tekur líka til samninga við ríki, sem eru utan banda-
lagsins. Eftir 19. gr. getur þing bandalagsins lilutazt til um
það, að meðlimir þess rannsaki það, livort samningur, sem
það liefur gert, sé elcki orðinn ónotliæfur. Og getur það mál
einnig tekið til ríkja utan bandalagsins, sem hinum megin
kann að standa að samningnum. Samskonar er um önnur
skipti milli meðlima bandalagsins og ríkja utan þess. Ef slík
skipti þvkja stofna friði milli ríkja í hættu eða vera ósæmi-
leg, þá getur þingið einnig lilutazt til um það, að slíkum
skiptum verði slitið. Þá segir í 1. málsgr. í 20. gr., að meðlimir
bandalagsins skuldbindi sig framvegis til þess að gera enga
samninga við önnur ríki, er ósamrímanlegir séu fyrirmælum
sáttmálans. Þetta tekur einnig til samninga við ríki utan
bandalagsins, og befur sáttmálinn liér því einnig óbeinlínis
áhrif á stöðu ríkja, sem ekki eru i bandalaginu. f 2. rnálsgr.
20. greinar er meðlimum bandalagsins gert skvlt að gera ráð-
stafanir til að losa sig undan öllum slíkum samningum, og
nær þetta einnig til samninga við ríki utan bandalagsins.
Með því að Þjóðabandalagið Iiefur margskonar verkefni
að leysa, þá geta athafnir þess verkað á aðstöðu aðilja, sem
ekki eru meðlimir þess, án þess að sliks sé getið, beint eða
óbeint, í sáttmálanum, eins og atliafnir einstaks manns end-
urverka einatt á aðstöðu annara einstaklinga.
3. f þessu sambandi má lauslega minna á vald Þjóðabanda-
lagsins um stjórn borgarinnar Danzig, Saarhéraðsins, vernd-
un minnihluta þjóðerna og eftirlit með rækslu hinna svo-
nefndu „mandata“ eftir 22. gr. sáttmálans. í öllum þessum
greinum hefur bandalagið mikilsverð afskipti af aðiljum, sem
ekki eru í því.
Annarsverður nánar talað um einstök efni, erþessi málvarða,
þegar lýst verður verkefnum Þjóðabandalagsins (Sjá V. kafla).
5