Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1933, Blaðsíða 77
73
minni lilutann á þingi bandalagsins. Þetta er í samræmi við
hugmyndir manna og venju um öll þau mál, þar sem sam-
komulag aðilia þarf til framkvæmdar þeim. Annað atriði,
sem síðar verður atliugað, er það, hvort félagi bandalagsins
verði yfirleitt hundinn við samþykki fulltrúa sinna á þingi
bandalagsins. Hvernig sem þessa spurningu skal leysa, þá er
hitt víst, að einungis einróma samþvkkt ákvörðun verður
lögð til grundvallar skvldu einstakra félaga handalagsins til
sjálfstæðra athafna.
Ef reglan um nauðsyn einróma samþykkis á þingi Þjóða-
bandalagsins gilti um öll mál, sem þingið skal afgreiða, þá
jrrði það algerlega óstarfshæft. Því eru gerðar all mikilsverð-
ar undantekningar frá henni. Sumar eru samkvæmt sáttmál-
anum (A), en sumar eftir öðrum lieimildum (B).
A. 1. Höfuðundantekningin frá áðurnefndri almennri reglu
er i 2. mgr. 5. gr. sm. Þar segir svo, að „all matters of proce-
dure“ á fundum þingsins skuli afgreidd með meiri liluta at-
kvæða bandalagsfélaga, sem fulltrúa eigi á þinginu. „Matters
of procedure“ merkir öll mál, er varðci þingsköp. En það getur
vist stundum orkað tvímælis, hvað sé „matters of procedure“.
Yfirhöfuð taka orð þessi til hinnar formlegu meðferðar mála,
svo sem skipunar nefnda, atkvæðagreiðslu, ákvörðun dag-
skrár o. s. frv. í 19. gr. þingsk. segir líka berum orðum, að
allar ákvarðanir, sem teknar verða samkvæmt þeim, skuli
teljast „matters of procedure“. En takmörkin eru óglögg. A-
greiningur um það, livort málefni heyri undir þingið eða ekki,
er t. d. varla „matter of procedure“, því að reglur um valdsvið
þingsins eru efnisreglur, en ekki forms. Ef vafi leikur á því,
livort þingið sé bært að taka mál til meðferðar, þá þarf ein-
róma samþvkki til þess, að það verði gert. Ef aftur á móti
ekki væri spurning um það, hvort þingið væri bært að taka
mál til meðferðar, heldur að eins um það, hvorl það skyldi
gert á ákveðnum þingfundi, þá væri lausn þess máls „matter
of procedure“. Þingið verður að skera úr því, til livors flokks-
ins málefni eigi að teljast, ef það orkar tvimælis. Aðalregl-
an er, að „matters of procedure“ skal útkljá með einföldum
meiri hluta. En til úrlausnar einstakra þingskapaefna þarf
þó aukinn meiri hluta. (Sjá að framan III. 2. i. f.).
2. Að eins % atkvæða þarf til taka nýjan félaga í bandalag-
ið, 2. mgr. 1. gr. sm.
3. Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. sm. getur þingið samþykkt með
einföldum meiri hluta útnefningu ráðsins á föstum meðlimum
10