Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1933, Blaðsíða 103
99
Ef ekki er öðruvísi samið, þá er reglan sú, að livor um sig
getur sagt upp stöðunni með sex mánaða fyrirvara. Það er
og mælt, að starfsmenn eiga venjulega að láta af stöðu sinni,
þegar þeir hafa náð sextugs aldri. Svo getur framkvæmdar-
stjóri sagt manni upp, ef hann verður ófær vegna sjúkdóms
til starfans, en þá fær liann venjulega leyfi fyrst um tíma,
meðan reynt er um bata.
Hjálparsjóður var stofnaður lianda starfsmönnunum, þar
á meðal starfsmönnum vinnumálaskrifstofunnar og Haag-
dómsins. Til sjóðsins gjalda starfsmenn 5% af launum sín-
um mánaðarlega, og sömu upphæð lagði handalagið sjálft
til fyrir hvern starfsmann. En með nýju starfsmannareglu-
gerðinni er stofnaður eftirlaunasjódur fyrir sömu starfs-
menn, og gengur lijálparsjóðurinn inn í hann. Starfsmenn
ráðsins eftir 1. jan. 1931 til að minnsta kosti 7 ára greiða í sjóð
þenn 5—6*4% af launum sínum mánaðarlega. Þeir, sem
skipaðir voru fyrir þann tíma, geta og orðið þátttakendur í
þessum sjóði. Æðstu starfsmenn skrifstofunnar hafa þó
nokkra sérstöðu í þessum efnum. Þing bandalagsins velur
þrjá menn í stjórn sjóðsins, framkvæmdarstjóri einn, for-
stjóri vinnumálaskrifstofunnar einn og starfsmenn, er greiða
i sjóðinn, tvo. Starfsmennirnir fá eftirlaun úr sjóðnum, er
þeir láta af stöðu sinni, eftir aldri sínum og embættisaldri,
og örorkubætur, ef þeir sleppa slarfanum vegna slysa, er þeir
hafa orðið fyrir í framkvæmd hans. Loks fá ekkjur starfs-
manna eftirlaun, liækkandi eftir barnafjölda, og foreldra-
laus börn starfsmanna.
2. Eins og fyrr segir, eru svisslenzkir dómstólar ekki bærir
að dæma mál um ágreining milli starfsmanna bandalagsins
og þess út af störfum þeirra og hegðun í starfinu. Og enginn
dómstóll nokknrs annars ríkis er heldur bær að dæma slík
mál. Það vantaði því alveg úrskurðarvald um þessi mál, t. d.
um réttmæti uppsagnar, brottvikningar úr stöðu o. s. frv.
Fyrir því hefur þing bandalagsins sett 26. sept. 1927, með við-
bót síðar, reglur um dómstól til að skera úr þessum málum
(tribunal administratif). Dómurinn er skipaður þremur
mönnum, er sinn sé af hverju þjóðerni, og jafnmörgum
varamönnum. Skipar ráðið dómendur til þriggja ára í senn.
Dómendur kjósa sér sjálfir formann og varaformann. Dóm-
urinn fer með mál út af brotum á ráðningarsamningum, út
af kröfum um bætur vegna sjúkdóms eða slysa, er starfs-
maður liefur orðið fyrir í framkvæmd starfa síns, og um eft-