Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1933, Blaðsíða 115
111
eftir þörfum. Hún heldur fundi eftir kröfu ráðsins, undir-
nefnda eða fulltrúa einstakra aðilja. Forsetadæmi í nefnd-
inni kemur til skiptis á fulltrúana eftir stafrófsröð umbjóð-
enda þeirra. Til ályktana þarf almennt einróma samþykki,
og er þá eitt atkvæði fyrir livern aðilja, sem fulltrúa á i
nefndinni. Framkvæmdarstjóri nefnir handa nefndinni þrjá
skrifara, sem eru kunnáttumenn liver í einhverri áðurnefndri
grein hermálanna.
B. Mandatanefndin (commission permanente des man-
dats), sem ráðið hefur stofnað samkvæmt 9. mgr. 22. gr.
sm., og skipar 10 mönnum um ótiltekinn tíma, enda skal
meiri hluti liennar vera frá aðiljum, sem ekki liafa með
höndum nokkurt mandat samkvæmt 22. gr. sm. Nefndarmenn
eru ekki fulltrúar neins ríkis sérstaklega og mega ekki lield-
ur hafa á liendi nokkurt starf, er geri þá liáða stjórn lands
síns. Vinnumálaslofnunin getur ennfremur sent fulltrúa sinn
á fundi nefndarinnar til þátttöku í málum varðandi vinnu-
mál. Nefndin skal athuga skýrslur mandataranna og gera til-
lögur sinar til ráðsins út af þeim. Hún lieldur venjulega fundi
tvisvar á ári, í júní og nóvemher, og tekur ákvarðanir með
meiri liluta atkvæða, en senda skal ráðinu álit minni liluta,
ef þess er krafizt, enda eru ræður fundarmanna prentaðar.
Mandatar getur jafnan sent fulltrúa á fundi nefndarinnar,
þegar hans skýrsla er tekin til meðferðar. Kvartanir um með-
ferð á mandati koma jafnan fvrir nefndina, eftir að mandatar
hefur fengið tækifæri til að atliuga þær.
C. AlJ)jóðarnefnd til eflingar andlegri samvinnu (commis-
sion internationaíe de coopération intellectuelle). Ráð handa-
lagsins skipar nefnd þessa 15 mönnum ýmsra þjóðerna, er
séu kunnir menn á sviði vísinda, lista o. s. frv. Nefndin á að
vinna að kynningu manna, er að þessum málum starfa, og
stofnana, og efla réttindi þeirra og trvggja. Hún er og fram-
kvæmdarráð alþjóðastofnunarinnar i París til eflingar and-
legri samvinnu meðal þegna mismunandi ríkja, og er einnig
handalaginu til ráðuneytis í þessurn málum. Hún kemur sam-
an einu sinni á ári, og oftar, ef þörf þykir. Hún kýs forseta
sinn. Afl atkvæða ræður, og fundargerðir hennar eru hirtar.
Margar aðrar nefndir starfa í sambandi við nefnd þessa,
svo sem framkvæmdarráð Parísar-skrifstofunnar (comité
exécutif), sem er skipuð 5 mönnum úr aðalnefndinni og 3
öðrum, og kemur saman fjórum sinnum á ári, fastanefnd
bókmennta og lista (comité permanent des lettres et des