Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1933, Blaðsíða 144
140
þessum ástæðum hefur bandalagið komið sér upp nokkurs-
konar vara- eða rekstrarsjóði (comptes d’avances), sem veitt
er fé til á fjárhagsáætlun og' innifalið er i tillögum meðlim-
anna. Til þessa sjóðs er g'ripið, þegar ekki er nægilegt í sjóði
til að standast daglegar greiðslur. Sjóður þessi hefur reikn-
ingsfærslu sér, og skal aftur greiða i liann það, sem úr hon-
um er tekið, þegar þess er kostur. Sjóðurinn er skoðaður sér-
eign félaga, reiknað eftir heildaruppliæð hans og þess, sem
hver hefur í liann greitt. Sá, er fer úr bandalaginu, getur, ef
þingið samþykkir, fengið séreign sína í sjóðinum greidda, og'
þingið getur einnig ákveðið að greiða öðrum félögum þeirra
liluta að einhverju levti eða öllu. Þeir, sem gengið liafa í
bandalagið eftir 15. nóv. 1920, mega greiða í sjóðinn fram
yfir tillag' það, sem ákveðið er í fjárhagsáætlun, svo að hluti
þeirra i lionum verði að tiltölu jafn við eign hinna. Hámark
sjóðsins er ákveðið 5 millj. gullfranka, en má þó verða liærri,
ef félagar neyta áðurnefnds réttar síns.
IV. Fjárliagsáætlun handalagsins liefur svipaða þýðinga og
fjárlög einstakra ríkja. Engin gjöld má greiða, nema heim-
ikl sé til þess í fjárliagsáætlun. í þetta verður þó vitanlega
ekki stranglega lialdið, að þvi leyti sem fjárveiting á ákveðn-
um lið lirekkur ekki allt af til, en yfirleitt er strangt eftirlit
með því, að gjöld séu ekki greidd, nema heimild sé til þess.
Engin úthorgun má yfir liöfuð fara fram, fyrr en skrifstofa,
þar til sett, liefur athugað heimildina til greiðslunnar og livort
skylt sé að greiða, og' lýst yfir, að greiða megi.
V. Um endurskoðun reikninga eru líka allrækileg ákvæði.
Endurskoðandi (commissaire aux comptes) er skipaður af
ráðinu eftir tillögum eftirlitsnefndar lil 5 ára. Hann má ekki
vera starfandi í nokkurri deild eða stofnun Þjóðabandalags-
ins. Endurskoðandinn á þrisvar sinnum árlega að athuga
reikningsfærslu liverrar stofnunar handalagsins og gera
skjTslu um athuganir sinar til eftirlitsnefndar. Reikningana
sjálfa skal liann svo að lokum endurskoða og bera saman
við fjárhagsáætlunina. Athugun lians er ekki að eins tölu-
endurskoðun, lieldur einnig endurskoðun á allri fjármeðferð-
inni á árinu. Hann getur krafið viðkomendur um allar upp-
lýsingar varðandi reikningsfærsluna. Framkvæmdarstjóri á
að gæta þess, að ársreikningum sé lokið fyrir 1. apríl ár livert,
en endurskoðun á að vera lokið 15. apríl. Eftirlitsnefnd fær
svo reikningana til meðferðar, ásamt athugunum endurskoð-
anda og' svörum viðkomandi forstjóra liverra hinna þriggja