Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1933, Blaðsíða 199
195
skuli hafa frelsi til að nota tungu sína, rækja trú sína og'
siðn, að svo miklu leyti sem það má fara saman við alls-
herjarreglu og almennt velsæmi, að þeir iiafi öll horgara-
leg og þjóðleg réttindi til jafns við alla aðra þegna ríkisins,
svo sem kjörgengi og kosningarrétt til þings og bæjar- og
sveitarstjórna, rétt til landsvistar, eignarlialds á föstum og
Jausum aurum, rétt til að halda skóla og guðsþjónustuhús,
verndun lífs og eigna o. s. frv. Það er sameiginlegt í öllum
þessum samningum og heitum, að minni hluta þjóðernin eru
sett undir vernd ráðs Þjóðabandalagsins. Kvartanir um van-
efndir á þeim geta hæði nafngreindir menn, félög, stofnanir
og ríkisstjórnir senl til framkvæmdarstjóra Þjóðabandalags-
ins, sem svo veitir viðkomandi stjórn vitneskju um kvörtun-
ina og tækifæri til að svara henni. Svo er meðlimum ráðsins
gefin vitneskja um liana, og forseti tekur hana á dagskrá,
ef ástæða þykir til að taka hana til meðferðar í ráðinu.
Þriggja manna nefnd, skipuð forseta ráðsins og tveimur
öðrum fulltrúum þar, athugar máiið venjulega, meðan sam-
komur ráðsins standa, en stundum þó milli þeirra. Ráðið
tekur málið svo til umræðu og reynir að sætta aðilja, ef
stjórnir rílcja eiga i lilut, en annars að fá hina kærðu stjórn
til að kippa þvi í lag, sem kvartað er yfir, og ábótavant þyk-
ir. Ráðið liefur og stundum leitað álits Haagdómsins í mál-
um þessum, bæði um ágreining varðandi vald ráðsins lil að
fara með málið og um það, livort aðili Iiefði haldið ákvæði
viðkomandi samninga um verndun minni hluta manna hjá
sér. Hingað til hefur ráðinu tekizt að jafna mál þessi.
IV. Starfsemi í þarfir sjúkra og særðra. Samkvæmt 25. gr.
sm. skuldbinda félagar bandalagsins sig lil að stuðla að því,
að stofnaðar verði sjálfboðadeildir Rauðakross félaga í lönd-
um sínum og hlvnna að þeim og starfi annars slíks löglega
viðurkennds félagsskapar til endurhóta á heilbrigðishögum,
varnar við sjúkdómum og linunar á þjáningum mannkyns-
ins. A alþjóðafundi Rauðakrossfélagsins 4. april 1924 var
samþykkt ósk um það, að Þjóðahandalagið vildi styðja
Rauðakross félög í einslökum löndum, er stofnuð væru til
til að lina þjáningar mannfólksins, án tillits til stjórnmála-
stefna og manngreinarálits. Og hefur því Rauðakross félagið
viljað liafa samvinnu við Þjóðahandalagið, enda Iiefur það
ákveðið, að heilbrigðismálastofnun þess liefði samvinnu við
Rauðakross félögin um haráttu gegn sjúkdómum. 25. gr. sm.
stendur annars að efni til nærri f-lið 23. gr. og 24. gr. sm.