Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1933, Blaðsíða 210
206
3. gr.
1. Þing bandalagsins er skipað fulltrúum allra félaga þess.
2. Þingið kemur saman á fyrirfram ákveðnum tíma og hvenær ann-
ars, þegar atvik heimta, á heimilisfangi bandalagsins eða þar annars
staðar, sem ákveðið verður.
3. Þingið getur tekið til meðferðar á fundum sínum hvert það
mál, er liggur í verkahring Þjóðabandalagsins eða varðar heims-
friðinn.
4. Enginn bandalagsfélagi má hafa fleiri en þrjá fulltrúa á þinginu
og hefur að eins eitt atkvæði.
4. gr.
1. Itáðið er skipað fulltrúum aðalvelda bandamanna og fulltrúum
fjögra annara félaga Þjóðabandalagsins. Þessa fjóra ráðsfélaga kýs þing
bandalagsins og ákveður kjörtíma þeirra. Fulltrúar Belgiu, Brasilíu,
Spánar og Grikklands skulu eiga sæti i ráðinu, þar tii þingið kýs ráðs-
félaga fyrsta sinni.
2. Ráðið getur, með samþykki meiri hluta þingsins, látið aðra fé-
laga Þjóðabandalagsins fá fast sæti í ráðinu. Með sama hætti má
fjölga þeim félögum Þjóðabandalagsins, sem þingið kýs til þess að
eiga fulltrúa í ráðinu.
(Samþykkt 5. okt. 1921.) Þingið setur, með samþykki % meiri
hluta, fyrirmæli um kjör þeirra, sem eklti eiga þar fast sæli, einkann-
lega um kjörtíma þeirra og skilyrði fyrir endurkjöri.
3. Ráðið kemur saman, þegar ástæða þykir til, og að minnsta kosti
einu sinni á ári, á aðsetri Þjóðabandalagsins eða annarstaðar, þar
sem kann að verða ákveðið.
4. Ráðið getur tekið til meðferðar á fundum sinum hvert það mál-
efni, sem er í verkahring Þjóðabandalagsins eða varðar heimsfriðinn.
5. Nú á félagi Þjóðabandalagsins ekki fulltrúa í ráðinu, og skal þá
veita honum kost á að senda þangað fulltrúa sinn, er sæti eigi í ráðinu,
þegar þar koma til meðferðar mál, er sérstaklega varða hann.
6. Enginn félagi Þjóðabandalagsins, sem fulltrúa hefir í ráðinu, má
hafa þar nema einn fulltrúa og eigi nema eitt atkvæði.
5. gr.
1. Ályktanir á fundum þings Þjóðabandalagsins og ráðs verða því
aðeins gerðar að einróma samþykki allra félaga Þjóðabandalagsins,
er fuiul sækja, komi til, enda sé ekki öðruvísi mælt i sáttmála þess-
um.
2. Öllum atriðum, er varða fundarsköp þings eða ráðs, þar með
skipun nefnda til rannsóknar einstakra málefna, ræður þingið eða
ráðið til lykta, og skal þá ráða meiri hluti þeirra félaga bandalags-
ins, sem fulltrúa eiga á fundi.
3. Forseli Bandaríkjanna í Ameríku kveður þing Þjóðabandalags-
ins og ráð til fundar fyrsta sinni.
6. gr.
1. Hin fasta skrifstofa Þjóðabandalagsins skal vera á aðsetri þess.
Skrifstofuna skipa framkvæmdarstjóri, varaframkvæmdarstjórar og
starfsmenn eftir þörfum.