Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1933, Blaðsíða 211
207
2. Fyrsti framkvæmdarstjóri skrifstofunnar skal vera sá maður,
sem í viðbætinum segir. Síðan skal ráðið skipa framkvæmdarstjóra,
enda staðfesti meiri hluti þingsins skipunina.
3. Framkvæmdarstjóri skipar varaframkvæmdarstjóra og starfs-
menn skrifstofunnar, enda staðfesti ráðið skipunina.
4. Framkvæmdarstjóri skal samkvæmt embættisstöðu sinni vera
þingi og ráði til aðstoðar.
5. (Samþykkt 5. okt. 1921.) Félagar Þjóðabandalagsins bera kostnað
af því i þeim hlutföllum, sem þingið ákveður.
7. gr.
1. Aðsetur Þjóðabandalagsins er í Genf.
2. Róðið getur hvenær sem vera skal ákveðið, að aðsetur banda-
iagsins skuli vera annarstaðar.
3. Jafnan aðgang skulu konur sem karlar eiga að embættum og
störfum í þágu bandalagsins, og er framkvæmdarstjórastaðan þar með
talin.
4. Fulltrúar félaga Þjóðabandalagsins og starfsfólk þess njóta sömu
hlunninda og sömu helgi í embættisþjónustu sinni sem ríkiserind-
rekar.
5. Hús og lóðir (i franska textanum: terraines, en í enska textan-
um: other properties = aðrar eignir), sem Þjóðabandalagið hefur
sér til afnota eða starfsmenn þess nota eða fulltrúar, sem sækja fundi
þess, eru friðheilög.
8. gr.
1. Félagar Þjóðabandalagsins viðurkenna það, að nauðsynlegt sé
til þess að friður haldist, að einstök ríki takmarki lierbúnað sinn svo,
að nægur sé til öryggis þess og til þess að íramkvæma, í félagi við
aðra félaga bandalagsins, þjóðréttarskyldur þess.
2. Ráðið skal gera frumvarp um slíkar takmarkanir, enda sé þar
tekið til greina hnattlega viðkomandi ríkis og aðrar sérstakar ástæður,
og fái svo ríkin frumvörp þessi til yfirsýnar og frekari aðgerða.
3. Frumvörp þessi skal endurskoða og, eftir ástæðum, gera breyt-
ingar á þeim á hverjum tiu ára fresti að minnsta kosti.
4. Nú hafa ríki þau, sem hlut eiga að máli, samþykkt frumvarp, og
má ekki, nema ráðið samþykki, fara út fyrir þau takmörk, sem sett
hafa þar verið um herbúnað.
5. Félagar bandalagsins telja hergagnagerð einstakra manna mjög
varhugaverða og fela því ráðinu að benda á ráð til þess að afstýra
hinum óheppilegu afleiðingum af henni, enda taki það til greina
þarfir þeirra félaga bandalagsins, sem eigi geta sjálfir búið til her-
gögn nauðsynleg sér til öryggis.
6. Félagar Þjóðabandalagsins skuldbinda sig til þess að iáta hver
öðrum í té algerlega hreinskilnar og fullkomnar sloj'rslur um það,
liversu mikinn herbúnað þeir hafi, hvað þeir ætlist fyrir sér um
hernað á landi og legi og í lofti, og um það, hvernig varið sé iðnaðar-
fyrirtækjum þeirra, sem nota má í hernaðar þarfir.
9. gr.
Skipa skal fasta nefnd til ráðuneytis ráðinu um framkvæmdir á
■■'IfWf.
*