Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1938, Side 6

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1938, Side 6
4 um leið fyrir lieilbrigði þjóðarinnar. Starf lians hefir fyrst og fremst verið mótað af einlægum vilja til að verða þjóð sinni að gagni, og fáir hafa sem hann verið sívakandi fyrir öllu, sem okkur mætti að liði verða í hinni örðugu lifsbar- áttu á þessu landi. Auk fjölda rita um læknisfræðileg efni hefir hann átt drjúgan þátt í að bæta híbýli þjóðarinnar, og honum er það að þakka, að ísland varð fyrst allra ríkja í Evrópu til að koma á löggjöf tii að tryggja það, að kauptún og hæir yrðu að vaxa eftir lögmálum fegurðar og njdsemd- ar, en ekki eins og óreglulegar húsaþyrpingar, þar sem eitt rekur sig á annars liorn, svo að bæirnir verða hörmulegir útlits. Ég er sannfærður um, að fáir gera sér nú grein fyrir því, live mikið afrek próf. G. H. hefir með þessu látið eftir sig, en seinni kynslóðir munu betur kunna að meta það. Ég leyfi mér að þakka próf. G. H. ágæta samvinnu, og fyrir hönd háskólans vil ég þakka honum fyrir þá dæmalausu elju, sem liann hefir sýnt í starfi sinu, f\rrir ósérplægnina, sem aldrei hefir spurt um annað en, hvað þarf að gera, eklci livað fæ ég fyrir það, ávalt haft almenningshag fyrir augum, en skeytt minna um eiginhagsmuni. Þótt próf. G. H. láti nú af kennslu vegna þess, að liann verður að gera það samkv. lögum, þá veit ég, að hann mun eftir sem áður vera sívakandi og' sístarfandi fyrir velferð þjóðar sinnar, og ég óska að við megum lengi fá að njóta hans miklu starfskrafta. 1 stað próf. Guðmundar Hannessonar hefir próf. Jón Steffensen þegar tekið við, frá síðustu áramótum. Ég er þess fullviss að próf. Steffensen, sem er erlendis sem stendur, mun reynast verðugur eftirmaður G. H. og að háskólinn hefir þar fengið ungan vísindamann, sem mikils má af vænta. I guðfræðisdeildina hefir í stað próf. Sig. Sívertsen, verið settur dócent séra Björn Magnússon. Eins og kunnugt er varð séra Björn hlutskarpastur í samkeppni um emhættið og sýndi afburðahæfileika í fræðigrein sinni, bæði i fróð- leik og vísindamennsku, og vona ég að háskólinn fái lengi að njóta starfskrafta hans.

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.