Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1938, Side 10
8
fara vel með hana og að fara vel með frjálsræði sitt er að-
alsmerki góðra drengja.
Þið, sem hlakkið til að fá nú að gefa ykkur að því, sem
þið hafið mestan áhuga fyrir, eigið eftir að reyna, að náinið
er ekki leikur einn og' að þið verðið að púla í gegn um margt,
sem ykkur þykir ekkert skemmtilegt. En þetta er fyrsti
forsmekkurinn af kröfu lífsins til vkkar, og það er hezt fyrir
ykkur að verða slrax mannlega við og ala upp í sjálfum
ykkur þá gleði, sem er lieilhrigðust, stærst og karlmannleg-
ust, nl. gleðin yfir vel unnu verki, yfir að hafa staðizt sína
raun, sigrazt á erfiðleikunum, hverju nafni sem nefnast.
Munið að mannsorkan er svo stórkostleg, þar sem sterkur
vilji stýrir henni, að henni eru litil takmörk sett, og að hvert
einstakt ykkar er orkulind, sem vilji ykkar ræður, livort varið
verður til samstiltra átaka þjóðfélaginu og ykkur sjálfum
lil gagns og gleði, eða hvort þið látið orku vkkar fuðra
stefnulaust út í loftið. Látið ekkert vaxa ykkur í augum af
því að það sé of mikið verk, og þegar skemmtanalöngun
og skyldan togast á, venjið ykkur þá i tíma á að taka í með
skyldunni.
Leggið ykkur eftir fögrum listum og alið upp smekk vkkar
fyrir fegurð í hverju formi sem er, svo að þið getið notið
margs í lífinu, því að öll fegurð, hvort heldur er í hljómlist,
skáldskap, málara- eða myndalist, auðgar þann, sem kann
að meta liana. Skemmtið ykkur til að hressa vkkur, en lifið
ekki til að skemmta ykkur. Minnist þess, að áfengi er hættu-
legt fyrir veikan vilja og eitur hverjum andlega starfandi
manni. Það er siðmenningarvottur að nota það vel, en það er
sama og að nota það lítið.
Farið vel með líkama ykkar og teljið ekki eftir ykkur
tímann, sem fer í sund, skíðahlaup og aðrar útiíþróttir, sem
veita hæði líkamlega og andlega hressingu i senn.
Og þó að ykkur finnist þið vera fátæk, þá eruð þið þó svo
rík. Þið eigið æskuna fram yfir þá eldri, menntunina fram
yfir jafnaldra ykkar og þegar þar við hælist trúin á fram-
tíðina, lifið, landið og sjálf ykkur, þá er ánægjulegt að fagna