Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1938, Blaðsíða 14
12
Gjöf dr. Hannesar Þorsteinssonar. Skipulagsskrá fyrir sjóð-
inn var staðfest af konungi 2. febrúar 1938, og er hún prent-
uð á bls. 65.
Styrktarsjóður læknadeildar. Skipulagsskráin var endur-
slcoðuð, og er liún birt á bls. 66.
Stúdentagarður. Af hálfu háskólans voru endurkosnir í
stjórn stúdentagarðsins prófessorarnir Níels Dungal og Ás-
mundur Guðmundsson.
Framfarasjóður B. H. Bjarnasonar. Af hálfu háskólans var
próf. dr. Ágúst H. Bjarnason endurkosinn í stjórn sjóðsins
til 3 ára.
Kanadasjóður. Háskólaráðið veitti Jakob Sigurðsnyni stú-
dent meðmæli um styrk úr sjóðnum.
Legat Guðmundar Magnússonar prófessors og Katrínar
Skúladóttur. Á þessu ári keypti sjóðurinn þann fimmtung
Ilrappseyjar, sem verið hafði í annara eigu. Kaupverðið var
4000 kr. (fasteignamat 3900 kr.).
Námsleyfi. Þessir erlendir stúdentar fengu levfi til skrá-
setningar: Friedrieh Walterscheid, Wilhelm Schulzen, Aloys
Bokel, Ingibjörg Stein-H. Bjarnason, Ruth Dzulko, Erich
Schwinn. í lok skólaársins var Ólafi Sv. Björnssyni veitt leyfi
til skrásetningar, en liann liafði lokið stúdentsprófi í Dan-
mörku.
IV. KENNARAR HÁSKÓLANS
í guðfræðisdeild:
Prófessor dr. theol. Magnús Jónsson og prófessor Ásmund-
ur Guðmundsson og settur dósent Björn prófastur Magnús-
son. Hinn 16. nóv. 1937 var síra Sigurði Einarssyni veitt
dósentsembættið við deildina, og tók hann þá þegar við em-