Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1957, Page 151
149
d) Þá hélt ráðið tvo dansleiki í sambandi við Alþjóðaskákmót
stúdenta. Voru þeir báðir fjölsóttir.
e) Stúdentaráð sá um dagskrá í Ríkisútvarpinu síðasta vetrardag.
Um áramótadansleik í anddyri Háskólans.
Samþykkt var einróma tillaga frá meirihluta Stúdentaráðs að fela
stjórn ráðsins að fara þess á leit við rektor og Háskólaráð, að Stúd-
entaráði yrði heimilað að halda áramótadansleik í anddyri Háskól-
ans, svo sem tíðkaðist fyrr á árum.
Stúdentaráð benti á, að mjög mikill ágóði gæti orðið af skemmtun
þessari, því að svo hefði ávallt verið fyrr meir, jafnvel svo tugum
þúsunda skipti. Lagði Stúdentaráð til, að ágóðanum yrði að þessu
sinni varið til niðurgreiðslu á skuldum Garðanna eða lagður til
byggingar hjónagarðs eða félagsheimilis.
Á þessum grundvelli ræddi stjórn ráðsins við rektor, sem tók
málaleituninni ekki óvinsamlega. Kvaðst hann mundu leggja málið
fyrir háskólaráð, en gat þess jafnframt, að auk samþykkis háskóla-
ráðs þyrfti að fá heimild menntamálaráðherra. Þessu næst var tal
haft af menntamálaráðherra, og taldi hann nokkur tormerki á, að
mál þetta næði fram að ganga. Áður en menntamálaráðherra gaf
endanlegt svar, synjaði háskólaráð erindi Stúdentaráðs. Stúdentaráðs-
mönnum öllum þótti þetta að vonum allill málalok þar eð menn voru
á einu máli um, að leið þessi væri mjög vænleg til fjáröflunar fyrir
fyrirtæki þau, sem hér um ræðir. Virðist mönnum hér vera við furðu
ramman reip að draga, hvað sem valda mun.
Hjónagaröur — happdrætti.
Svo sem stúdentum er kunnugt hefur á undanförnum árum mjög
verið rætt í Stúdentaráði um byggingu hjónagarðs.
Allir hafa verið sammála um nauðsyn þess, að slíkur stúdenta-
garður yrði reistur hér, og tillögur hafa verið samþykktar um að
hefja undirbúning að byggingunni. Málið hefur verið rætt við rektor
og formann garðstjómar, en þeir hafa ávallt lýst þeirri skoðun sinni,
að tómt mál væri að tala um byggingu nýs stúdentagarðs, fyrr en
greiddar hafa verið niður að mestu leyti þær skuldir, er hvíla á
görðum þeim, sem fyrir eru.
Núverandi Stúdentaráð féllst fyrir sitt leyti á þessi rök, og í sam-
ræmi við það var í janúar samþykkt tillaga frá meirihluta ráðsins,
sem miðar að raunhæfum aðgerðum í málinu. Segir þar, að ráðið
samþykki að stofna til happdrættis, og skal vinningur vera bifreið,
ein eða fleiri, eftir því hvað hagstæðast telst. Aðaláherzlu skal leggja