Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1973, Blaðsíða 22
20
Árbók Háskóla íslands
leyst fyrir júnímánuð, þá virðist mér eigi
gerlegt að taka stúdenta til innritunar í
tannlæknadeild.
Háskóli íslands óskar eftir auknu sam-
starfi við þær vísindastofnanir aðrar, sem
til eru í landinu, um aðstöðu til aukinnar
kennslu. En í mörgum tilvikum stendur
húsnæðisskortur viðkomandi stofnunar í
veginum fyrir því, að hægt sé að sinna þar
fjölmennum hópum.
Norðurlandaþjóðirnar eins og fleiri
glíma við þessi sömu vandamál. í Osló
hefur nú verið stofnað „Industriseminar",
sem á að kynna Stúdentum atvinnulíf Nor-
egs og veita þeim aukna námsmöguleika
og ekki síst að sjá til þess, að atvinnulífið
eða athafnamenn þess fái að kynnast há-
skólakennslunni. Þátttaka er frjáls, en á
þessu misseri fara fram tvö sérhæfð nám-
skeið og eitt námskeið fyrir þá, sem lokið
hafa prófi. Hef ég þegar talað við þá
stofnun til þess að fá nauðsynleg gögn og
upplýsingar í hendur. í undirbúningi er í
Danmörku stofnun, sem hefur neytenda-
hagfræði sem aðalverkefni, og við Chal-
mers Tekniska Högskola í .Gautaborg er
Vinnu- og tæknideild í undirbúningi. Að
sjálfsögðu mun verða reynt að fylgjast með
því, sem þar er í bígerð.
Enn fremur vil ég nota tækifærið til að
vekja athygli á stofnun, sem nefnist Nor-
disk Husholdnings Hójskole. Heiti stofn-
unarinnar gefur annað í skyn en það, sem í
nafninu felst. Stofnun þessi er ekki til á
einum stað, heldur fer námið fram við
ýmsa háskóla. Neytendahagfræðin í Dan-
mörku og Vinnu- og tæknideildin við
Chalmers eru fyrirhugaðar deildir innan
þessarar Norðurlandastofnunar, sem ís-
lendingar eiga aðgang að.
í gangi eru tvær deildir. Vefnaðarvöru-
deild er við Chalmers. Er þetta viðurkennt
háskólanám. Inntökuskilyrði er venjulegt
stærðfræðistúdentspróf eða próf sem fag-
kennari í vefnaði. Hér er um 2Vi árs nám að
ræða. Og í náminu er prófverkefni, sein
vinna má að í hverju Norðurlandanna sem
er. Kennslugreinar eru: stærðfræði, eðlis-
fræði, vélfræði, eðli og styrkleiki hinna
ýmsu vefnaðarvörutegunda, efnafræði,
hagfræði, vefnaðarefna- og eðlisfræði,
prófunartækni og tilraunahönnun. Til við-
bótar er tveggja mánaða starf í vefnaðar-
iðnaði.
Hin deildin er Matvæladeildin við Há-
skólann í Osló, eða nánar tiltekið stofnun
Johan Throne Holsts fyrir matvælarann-
sóknir á Blindern. Tilgangur þessa náms er
að mennta karla og konur til að mynda
tengilið milli vísindarannsókna og almenn-
ings. Inntökuskilyrðin eru venjulega
stærðfræði- eða náttúrufræðideildarstúd-
entspróf. Námið tekur 2Vi ár, en viðbótar-
nám, t. d. í dietetik, kemur einnig til
greina. Aðalkennslugreinar eru efnafræði,
lífefnafræði, lífeðlisfræði og næringarfræði.
Auk þess eru tölfræði, líffærafræði, mikro-
biology, matvælaefnafræði, matvælalög-
gjöf, upplýsingatækni og fleira.
Hér virðist vera um deildir að ræða, sem
ef til vill væri hægt að koma hér upp og
mundu bæta úr nokkurri þörf atvinnuveg-
anna. Standa vonir til, að hingað berist
von bráðar upplýsingar um þessa starf-
semi.
Mál þetta gæti reynst hið gagnsamasta,
því ljóst er, að bæði háskólamenn og
athafnamenn atvinnulífsins sjá og skilja,
að um nauðsyn er að ræða.