Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1973, Blaðsíða 38
36
Arbók Háskóla Islands
Ræða rektors á háskólahátíð fyrsta vetrardag 23. október 1971
Herra forseti íslands og forsetafrú, hæst-
virtu ráðherrar og sendimenn erlendra
ríkja, herra rektor Hafnarháskóla, kennar-
ar, stúdentar og gestir, háttvirta samkoma.
Hinn 17. júní 1911 var Háskóli íslands
stofnaður með hátíðarathöfn á hádegi í sal
neðri deildar Alþingis. Við það tækifæri var
sunginn kvæðaflokkur eftir Porstein
Gíslason, þar sem eitt erindi hljóðar svo:
Öld fylgir öld
í eilífðar keðju;
sumrinu vetur,
sólunni nótt.
Kynslóðir fæðast,
kynslóðir deyja.
Eilíf er gáta
upphaf og lok.
Háskóli íslands er nú sextugur orðinn, og
í dag er þess minnst. Hversu vel eiga ekki
orð skáldsins við nú. Ár fylgir ári, eins og
öld fylgir öld, sólu nótt, sumri vetur. Rétt
eins og í dag, er vetur gengur í garð. Pá
hefur tímans hjól snúist og snýst með ofsa-
hraða. Kynslóðir fæðast, kynslóðir deyja.
Hin eilífa gáta um upphaf og lok. Hollt er
oss að minnast þess nú í dag, er sumar er
liðið og vetur hafinn, 61. starfsár Háskóla
íslands.
Saga Háskóla íslands fyrstu 50 árin hefur
verið skráð, skilmerkilega og vel, af pró-
fessor emeritus, dr. phil. Guðna Jónssyni.
Og má þar í upphafi sjá, að mjór er mikils
vísir. Um veturnætur 1911 voru stúdentar
fimm í guðfræðideild, sautján í lagadeild,
tuttugu og þrír í læknadeild, samtals 45
stúdentar. En kennaraliðið var tveir pró-
fessorar og einn dósent í guðfræðideild; þrír
prófessorar í lagadeild; tveir prófessorar
auk sjö aukakennara og landlæknis í
læknadeild; en í heimspekideild tveir pró-
fessorar og einn dósent auk kennara í
frönsku og frönskum bókmenntum og
kennara í jurtafræði. Auk þess voru svo
ritari og dyravörður, en heimkynni í húsi
Alþingis. Reikningur ársins 1911 var kr.
2.367,91 auk vaxta kr. 1,26, samtals kr.
2.369,17, en 1912 varfjárlagaheimildin kr.
51.100. Af þeirri upphæð voru kr. 3.600
ætlaðar til húsaleigustyrkja stúdenta, en kr.
5.400 til námsstyrkja og kr. 300 til utanfara
læknaefna. 18,2% voru því ætluð stúdent-
unum til góða, auk þess sem nokkrir sjóðir
gátu aukalega veitt verulega styrki. Nú er
orðin ærið mikil breyting á. Kennaraliðið er
orðið með öilum ríf 260 manns og vex sú
tala ört. Stúdentar eru miðað við hinn 20.
október síðastliðinn:
Nýskráðir stúdentar:
Guðfræðideild: 9
Læknadeild: 78
Tannlæknadeild: 9
Lyfjafræði lyfsala: 19
Lagadeild: 43
Viðskiptadeild: 73
Heimspekideild: 289
Verkfræði- og raunvísindadeild: 165
Þjóðfélagsfræði: 57 Samta,s ?42
Árleg endurskráning reyndist hins vegar
vera svo:
Guðfræðideild: 35
Læknadeild: 204
Tannlæknadeild: 40
Lyfjafræði lyfsala: 9
Lagadeild: 167
Viðskiptadeild: 160
Heimspekideild: 249
Verkfræði- og raunvísindadeild: 158
Pjóðfélagsfræði: 57 Samtals 1079