Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1973, Blaðsíða 134
132
Árbók Háskóla íslands
námsstjórn hlutverki háskóladeildar
samkv. 11. gr. laga nr. 84/1970, og eiga
fulltrúar stúdenta í námsstjórn þá ekki
atkvæðisrétt.
Námsstjórn getur ráðið stundakennara
eftir því sem fé er veitt til á fjárlögum.
96. gr.
Námsstjórn heldur fundi eftir þörfum,
en skylt er að boða til fundar, ef rektor eða
þriðjungur þeirra, er rétt eiga á fundar-
setu, æskja fundar.
Formaður námsstjórnar boðar fundi
með hæfilegum fyrirvara. Fundarefni skal
greina í fundarboði.
Fundur er ályktunarfær, ef hann sækja
eigi færri en helmingur atkvæðisbærra
manna. Afl atkvæða ræður úrslitum mála.
Bókfæra skal fundargerð á hverjum
fundi, og skal lesa hana og staðfesta, áður
en fundi er slitið.
Nú er fjallað sérstaklega um kennslu-
greinar kennara, sem ekki eiga sæti á
fundum námsstjórnar, og skal formaður þá
boða þá á fund og gefa þeim kost á að ræða
það málefni, en atkvæðisrétt eiga þeir
ekki.
97. gr.
Formaður námsstjórnar hlutast til um,
að samin sé í tæka tíð skrá um fyrirhugaða
kennslu á kennslumisseri því, sem í hönd
fer.
98. gr.
Námsstjórn semur lestrar- og kennslu-
áætlun. Skal fjölrita hana eða prenta og
afhenda nemendum, er þeir hefja nám sitt.
í kennsluáætlun skal greina, hvaða
námsgreinar kenndar eru, hvernig þeim er
skipt í námskeið, hve námstíminn er áætl-
aður langur í heild og í hverjum prófhluta
um sig. Enn fremur skal lýsa þar kennslu-
háttum og prófháttum. Getið skal kennslu-
rita og annarra rita, sem æskilegt er, að
stúdent kynni sér í námi sínu, og almennt
greint frá náminu, eftir því sem þörf þykir.
Að því leyti sem kennsla fer fram utan
námsbrautarinnar á vegum einstakra
deilda skal samráð haft við deildirnar um
kennsluáætlunina.
99. gr.
Námsstjórn gerir áætlanir um húsnæðis-,
kennslu- og fjárþarfir námsbrautarinnar og
gerir tillögur um þau efni til háskólaráðs.
100. gr.
Námsstjórn sér um próf og ræður til-
högun þeirra, að svo miklu leyti sem ekki
eru sett um það bindandi ákvæði í lögum
eða reglugerð.
Próf í kennslugreinum, sem sóttar eru út
fyrir námsbrautina, hlíta prófreglum hlut-
aðeigandi deildar.
101. gr.
Námsstjórn ákveður, hvort eða að hve
miklu leyti kennsla skuli fara fram, meðan
á prófum stendur.
102. gr.
Að öðru leyti en að framan greinir
annast námsstjórn þau verkefni, sem
deildum eru falin í IV. og V. kafla 1. nr.
84/1970 og í samráði við deildirnar eftir því
sem við getur átt.
d. Félag stúdenta í almennum þjóðfélags-
frœðum.
103. gr.
Félag stúdenta í almennum þjóðfélags-
fræðum skal bera sömu skyldur og njóta