Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1973, Blaðsíða 144
142
Árbók Háskóla íslands
stofnun í fjölskyldurétti og fjölskyldumál-
efnum (bréf dags. 27. sept. 1971), en fallið
frá þeim áformum.
30. september 1971; 22. ágúst 1972.
4. Heimspekideild
Stofnanir í heimspekideild
Heimspekideild skrifar og flytur tillögur
um reglugerð fyrir rannsóknarstofnanir í
bókmenntafræði, norrænum málvísindum
og sagnfræði. Féllst háskótaráð á tillögurn-
ar (15. jan. 1970). Reglugerðin hlaut síðar
staðfestingu. 6 maí 1971
Menntamálaráðuneytið synjar um
greiðslu til útgáfustarfsemi á vegum
rannsóknarstofnunar í norrænum málvís-
indum. (Síðar felldi stofnunin niður störf
um óákveðinn tíma.)
10. febrúar 1972; 1. júní 1972.
Orðabók háskólans
Lagt fram bréf heimspekideildar dags. 2.
júní 1970, þar sem tilkynnt er, að deildin
hafi tilnefnt prófessorana Halldór Hall-
dórsson og Hrein Benediktsson svo og
væntanlegan forstöðumann Handritastofn-
unar íslands til setu í stjórn Orðabókar
háskólans næstu fjögur ár. Háskólaráð kýs
prófessorana Halldór Halldórsson og
Hrein Benediktsson svo og dr. Jakob
Benediktsson í stjórn Orðabókarinnar til
fjögurra ára. . ., .
1 b 4. jum 1970.
5. Tannlæknadeild
Stofnun tannlæknadeildar
Menntamálaráðuneytið tilkynnir með
bréfi dags. 2. maí 1972, að sérstök
tannlæknadeild við Háskóla íslands sé
stofnuð frá 1. maí 1972. , .. ,
1. jum 1972
Á fundi háskólaráðs 12. september 1972
sat í fyrsta sinni deildarforseti hinnar ný-
stofnuðu tannlæknadeildar, prófessor Jón
Sigtryggsson.
6. Námsbraut í almennum
þjóðfélagsfræðum
Lögð fram greinargerð þjóðfélagsfræði-
nefndar dags. 15. september 1969 um
könnun á viðhorfum nemenda til kennslu í
almennum þjóðfélagsfræðum. Enn fremur
lagt fram bréf Félagsmálastofnunar
Reykjavíkurborgar dags. 18. september
1969. Formaður þjóðfélagsfræðinefndar,
próf. Björn Björnsson, gerði grein fyrir
tillögum nefndarinnar. Að loknum um-
ræðum voru eftirfarandi tillögur nefndar-
innar bornar undir atkvæði og sam-
þykktar:
a. Þeim stúdentum, er hyggjast nema
almenn þjóðfélagsfræði sem aðalgrein,
verði gefinn kostur á að setjast í háskólann
nú í haust.
b. Komið verði upp námskeiðum sem
hér segir: a) Tölfræði, 3 vikustundir á
haustmisseri, próf í janúar. b) Almenn
þjóðhagsfræði, 3 vikustundir bæði misser-
in, próf í vor. c) Sálarfræði vormisserið,
próf í vor. d) Afbrotafræði vormisserið,
próf í vor. e) Einhver undirstöðuþáttur
félagsfræði eða félagsmannfræði hluta af
vormisseri, próf að námskeiði loknu.
c. Námskeið a og b verði á vegum
viðskiptadeildar, námskeið c á vegum
heimspekideildar og námskeið d á vegum
lagadeildar, öll í samráði við þjóðfélags-