Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1973, Blaðsíða 145
Kaflar úr gerðabókum háskólans
143
fræðinefnd. Kostnaður af þessari kennslu
verði þó greiddur sérstaklega.
d. Auk þessa hefjast á haustmisseri
kynningarfyrirlestrar skv. samþykkt há-
skólaráðs frá 1. september 1969, bæði fyrir
stúdenta í almennum þjóðfélagsfræðum og
aðra, er áhuga hafa á þeim fræðum. Hvert
ofannefndra prófa verði prófhluti og heim-
ilt að taka hvert þeirra án tillits til hinna.
19. september 1969.
Rætt um kennslu í almennum
þjóðfélagsfræðum. Lagt fram bréf Upplýs-
ingaþjónustu Bandaríkjanna dags. 14. 4.
1970, þar sem prófessor Hans H. Plam-
beck er tilnefndur sem gistiprófessor á veg-
um Fulbrightstofnunarinnar. Rektor upp-
lýsti, að væntanlega mun enn fremur kostur
á að fá Jan Frost, dósent í Uppsölum, til
starfa hér næsta háskólaár. Rektor falið að
afgreiða málið í samráði við formann þjóð-
félagsfræðinefndar. 16 aprfl
Lagt fram bréf mrn. dags. 30. júní 1970,
þar sem beiðst er umsagnar um meðfylgj-
andi uppkast að bráðabirgðalögum, sem
miða að stofnun sérstakrar þjóðfélags-
fræðideildar við Háskóla íslands. Jafn-
framt lagt fram bréf S.H.Í. dags. sama dag
varðandi þetta mál. Eftirfarandi tillaga
borin upp og samþykkt:
„Háskólaráð telur ótímabært, að stofn-
uð sé þjóðfélagsfræðideild við Háskóla
íslands, og vafasamt, að sú ráðstöfun sé
heppileg lausn á aðsteðjandi vandamálum
þjóðfélagsfræðikennslu við háskólann.
Háskólaráð hefur ályktað, að stúdentar í
þjóðfélagsfræðum skuli innritast í við-
skiptadeild, og ítrekar hér með það álit
sitt, að sú leið verði farin meðan frekari
undirbúningur þjóðfélagsfræðikennslu á
sér stað.“
Þá var borin fram svofelld viðbótartil-
laga og samþykkt samhljóða:
„Verði úr, gegn vilja háskólaráðs, að
þjóðfélagsfræðideild verði stofnuð með
bráðabirgðalögum, telur háskólaráð rétt,
að í lögin verði sett ákvæði til bráðabirgða
um stjórnun deildarinnar á þá leið, að
viðskiptadeild, lagadeild, heimspekideild
og guðfræðideild tilnefni hver sinn mann
úr hópi kennara, sem sitji fundi hinnar
nýju deildar með fullum réttindum. Há-
skólaráð gerir ráð fyrir sérstakri þóknun til
þeirra rnanna." ., ,
30. jum 1970.
Kennsla í þjóðfélagsfræðum. Rætt um
þörfina á að fá nú þegar til starfa kennara
vegna kennslunnar á haustmisseri. Eftir-
farandi tillaga var samþykkt samhljóða:
„Vegna kennslu í almennum þjóðfé-
lagsfræðum samþykkir háskólaráð að óska
eftir því við menntamálaráðuneytið, að
það auglýsi lausar til umsóknar stöðu lekt-
ors í félagsfræði og stöðu lektors í almennri
stjórnmálafræði þannig að hægt verði að
ráða í þær stöður um miðjan ágúst. Með
tilliti til aðstæðna telur háskólaráð heppi-
legast að setja í stöðurnar til eins árs.
Háskólaráð lítur svo á, að með setningu
lektoranna sé ekki tekin endanleg ákvörð-
un um það, hvort farið verður eftir til-
lögum þjóðfélagsfræðinefndar, m. a. um
tvær meginleiðir í náminu, félagsfræðileið
og stjórnmálafræðileið. Hins vegar telur
háskólaráð nauðsynlegt að hraða ráðningu
lektoranna svo að þeir geti orðið virkir
þegar í sumar við undirbúning kennsl-
unnar." 9. júlf 1970.