Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1973, Blaðsíða 149
Kaflar úr gerðabókum háskólans
147
Rauði Kross íslands tilkynnir (12. sept.
1973) þá ákvörðun aðalfundar R.K.Í. að
verja allt að 1,5 millj. króna til stuðnings
við stofnun námsbrautar í hjúkrunarfræðum
við Háskóla íslands, og komi 500 þús. kr.
til greiðslu á árinu 1973.
4. október 1973.
V. Fjármál og skipulagsmál
Happdrætti Háskóla íslands
Kosnir voru í stjórn Happdrættis Háskóla
íslands prófessorarnir Guðlaugur Þor-
valdsson, Bjarni Guðnason og Þórir Kr.
Þórðarson. Endurskoðendur voru kjörnir
Björn Magnússon prófessor og Atli
Hauksson, löggiltur endurskoðandi.
25. júní 1970.
Stjórnin var endurkjörin 1. júlí 1971,
12. september 1972 og 24. maí 1973.
Próf. Björn Magnússon lét af störfum
sem endurskoðandi, er hann lét af embætti
í háskólanum, en Atli Hauksson, lögg.
endurskoðandi, og Ólafur Magnússon
gjaldkeri voru kjörnir endurskoðendur á
þrem ofangreindum fundum háskólaráðs.
Háskólabíó
í stjórn Háskólabíós voru kjörnir 25. júní
1970 þeir próf. Árni Vilhjálmsson (for-
maður), próf. Ármann Snævarr, stud. oec-
on. Guðmundur Sigurðsson, Þorsteinn
Vilhjálmsson eðlisfræðingur og Stefán
Karlsson, mag. art. Endurskoðendur voru
kjörnir prófessorarnir Guðmundur Magn-
ússon og Steingrímur Baldursson. Stjórn-
armenn og endurskoðendur endurkjörnir
1- júlí 1971.
í stjórn Háskólabíós voru kjörnir fyrir
tfmabilið 1. júní 1973 til jafnlengdar næsta
ár prófessorarnir Árni Vilhjálmsson og
Jónatan Þórmundsson, og Erling Ólafs-
son. Endurskoðendur voru endurkjörnir.
24. maí 1973.
Endurskoðendur háskólareikninga
Endurskoðendur Háskóla íslands, sjóða
hans og stofnana voru kosnir prófessorarn-
ir Árni Vilhjálmsson og Guðlaugur Þor-
valdsson- 15. janúar 1970.
Árnagarður vígður
Haustið 1969 var Árnagarður tekinn í
notkun. Sunnudaginn 21. desember 1969
fór fram vígsla hússins, og stóðu fyrir þeirri
athöfn rektor Háskóla íslands, prófessor
Magnús Már Lárusson, og forstöðumaður
Handritastofnunar íslands (síðar Stofnun-
ar Árna Magnússonar á íslandi), prófess-
or, dr. Einar Ólafur Sveinsson.
Undirbúningur bygginga á lóð Land-
spítalans
Samþykkt samhljóða, að „brýna nauðsyn
beri til að hefja undirbúning að byggingu í
þágu tannlæknakennslunnar". Kosin
hönnunarnefnd: Prófessor Jón Sigtryggs-
son, formaður, prófessor Örn B. Péturs-
son, Jóhann Finnsson tannlæknir og Jó-
hannes L. L. Helgason háskólaritari. Stúd-
entar skyldu tilnefna í nefndina einn tann-
læknanema. 5 febrúar 1970
Menntamálaráðuneytið samþykkir (30.
maí 1972), að tillögur breskra sérfræðinga
varðandi skipulag og staðsetningu nýbygg-
inga á lóð Landspítala og læknadeildar
verði lagðar fyrir skipulagsyfirvöld
Reykjavíkurborgar. ?q .. . 1Q7?