Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1973, Blaðsíða 163
HÁSKÓLABÓKASAFN
Síðan 1969 hafa skýrslur Háskólabóka-
safns birst reglulega fyrir hvert ár um sig.
Skýrsla ársins 1969 birtist auk þess í heilu
lagi í Árbók H.í. 1968-69 og samsteypa og
um leið útdráttur úr skýrslum áranna
1973-75 birtist í Árbók H.í. 1973-76 og
áranna 1976-79 í Árbók H.í. 1976-79. Hér
verða árunum 1970-72 gerð svipuð skil.
1. Inngangur
Á því tímabili sem hér um ræðir (1970-72)
fjölgaði starfsliði safnsins úr þremur í sex,
og veitti sú aukning vitaskuld svigrúm til
margháttaðra umbóta í safninu og bættrar
þjónustu.
Húsnæði aðalsafns var aukið nokkuð og
lagfært, einkum vinnusvæði starfsliðs.
Stofnað var til nokkurra nýrra útibúa í
deildum, og lestrarhúsnæði jókst úr um
450 sætum í árslok 1969 í um 780 sæti 1972;
aukning er rúmlega sjötíu af hundraði. Sá
annmarki er þó á, að lessætin dreifast á
mjög marga staði og lestraraðstöðu vantar
bagalega í sjálfu aðalsafninu.
Útlán jukust um nær fimmtíu af hundr-
aði á tímabilinu og lánþegum fjölgaði um
sextíu af hundraði.
Eftir útkomu nýrra handbóka í flokkun
og skráningu var skráningarháttum safns-
ins gjörbreytt, svo sem lýst er í 8. kafla.
Aðstaða notenda til að fylgjast með að-
föngum fræðirita til landsins batnaði einnig
mjög við það, er Landsbókasafn hóf árið
1970 að gefa út samskrá um ritauka nokk-
urra helstu rannsóknarbókasafna.
Merkasta nýmæli tímabilsins var vitan-
lega ákvörðun alþingis um byggingu þjóð-
nrbókhlöðu, sem kemur til með að hýsa
bæði Landsbókasafn og Háskólabókasafn.
Þar með var endanlega mörkuð stefna um
skipulagsbreytingu sem lengi hafði verið á
döfinni, og gerir þessi ákvörðun þeim
söfnum sem í hlut eiga kleift að haga
starfsemi sinni í framtíðinni samkvæmt því.
2. Starfslið
Háskólabókavörður: dr. Björn Sigfússon.
Hann var í leyfi allt árið 1971, og var Einar
Sigurðsson cand. mag. settur til að gegna
embættinu sama tíma.
Bókaverðir: Aðalheiður Friðþjófsdóttir
(1. nóv. 1970 - 1. okt. 1971), Einar Sig-
urðsson cand. mag. (fyrsti bókavörður frá
og með 1970), Guðrún Karlsdóttir Dipl.
Lib. (frá 1. okt. 1970), Gunnar Karlsson
cand. mag. (1. febr. - 1. okt. 1970),
Sigríður Lára Guðmundsdóttir (frá 1. mars
1971), Pórir Ragnarsson Dipl. Lib. (frá 1.
okt. 1971 - hafði launalaust leyfi 1. sept.
1972- 1. júlí 1973).
Fulltrúar: Fríða Á. Sigurðardóttir (til 1.
febr. 1970), Nína Þórðardóttir B.A. (1.
febr. 1970 - 1. mars 1971).
Aðstoðarmenn: Þór Rögnvaldsson (1.
jan. - 1. okt. 1970), Óskar Árni Óskarsson
(frá 15. febr. 1972).
Auk þess unnu við safnið nokkrir laus-
ráðnir starfsmenn, lengri eða skemmri
tíma í senn, einkum á sumrin. Einnig hlutu
bókasafnsfræðinemendur vinnuþjálfun í
safninu.
3. Aðföng
Samkvæmt aðfangaskrá hefur safnauki
verið sem hér segir:
11