Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1985, Blaðsíða 22
20
Árbók Háskóla íslands
ingu 500 ára afmælis hans hinn 10. nóvem-
ber1983.
Séra Frank J. Bullivant, bókavörður í
Róm, flutti fyrirlestra haustmisserið 1984
um skjalasafn Vatíkansins, í samvinnu við
Árnastofnun.
Dr. Per Erik Persson, prófessor í trú-
fræði við Háskólann í Lundi, hélt fyrir-
lestra í trúfræði vormisserið 1985.
Dr. Jacob Neusner, prófessor við Brown
University í Bandaríkjunum, flutti fyrir-
lestur vormisserið 1985 um „The Jewish-
Christian Argument in the First Century".
Dr. Alberto Soggin, prófessor í Gamla-
testamentisfræðum við prestaskóla Vald-
ensa og við Istituto Pontificio í Róm, hélt
fyrirlestur haustmisserið 1985.
Dr. Kjell Ove Nilsson dósent, fram-
kvæmdastjóri Nordisk Ekumenisk Institut
í Uppsala, flutti fyrirlestra vormisserið
1986 um „Luthers teologiska betydelse i
dag“ og „Varldsekumenik pá grasrots-
nivá“.
Dr. David Belgum, prófessor við Uni-
versity of Iowa, hélt fyrirlestra haustmiss-
erið 1985 um „Guilt where Religion and
Psychology Meet“ og „Pastoral Care of the
Dying and the Bereaved".
Dr. Hemchand Gossey, „associate pro-
fessor“ í Gamla-testamentisfræðum við
Lutheran NW Seminary, Minnesota, hélt
fyrirlestra vormisserið 1986 um „Corrup-
tion and the Monetary Economy in the 8th
Century Prophets" og „Social Justice and
the Cult in Ancient Israel".
Húsnæðismál
Stórum áfanga var náð í húsnæðismálum
deildarinnar haustið 1985, en þá fengu
kennarar deildarinnar rúmgóð vinnu-
herbergi þar sem þeir geta kennt fámennari
hópum stúdenta. Þau eru á suðurgangi 3.
hæðar háskólabyggingarinnar og voru
þannig gerð, að annar hvor milliveggur
hinna litlu kennaraherbergja á þeim gangi
var numinn brott, svo að úr urðu 6 rúmgóð
herbergi, tvöföld að stærð við það sem áður
var. Auk þess fékk deildin sérstakt her-
bergi fyrir skrifstofu sína, en það herbergi
er jafnframt skrifstofa Guðfræðistofnunar.
Stúdentar
Tala stúdenta hefur haldist jöfn og þó
fremur aukist en hitt, og voru þeir í lok
vormisseris 1986 75 talsins. Þeir halda uppi
öflugu félagsstarfi og gefa út vandað tíma-
rit, Orðið, sem kemur út einu sinni á ári.
Jón Sveinbjörnsson
Guðfræðistofnun Háskóia íslands
Reglugerð um Guðfræðistofnun H.í.
hlaut staðfestingu árið 1975.
Hlutverk stofnunarinnar er:
1. að vera vísindaleg rannsóknarstofnun í
guðfræði,
2. að vera vísindaleg kennslustofnun í guð-
fræði fyrir kandídata og stúdenta, er
vinna að fræðilegum verkefnum, sem
sinnt er í stofnuninni, eftir nánari
ákvörðun stjórnar stofnunarinnar,
3. að vera með sama hætti, eftir því sem
aðstæður leyfa, vísindaleg rannsókna-,
þjónustu- og kennslustofnun í greinum,
sem skyldar eru guðfræði eða stunda
ber í guðfræðideild.
Aðild að stofnuninni eiga kennarar í
fullu starfi við guðfræðideild, sem og kenn-
arar í hlutastarfi, óski þeir eftir aðild.
Reglugerðin gerir ráð fyrir tímabundinni
aðild annarra sérfræðinga sem og kand-
ídata og stúdenta, en á það ákvæði hefur
ekki reynt til þessa vegna fjárskorts.