Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1985, Blaðsíða 31
Læknadeild og fræðasvið hennar
29
4. Blóðrannsóknir í barnsfaðernismálum.
Barnsfaðernismál .....................
Aðrar blóðflokkanir...................
Viðtakamælingar
Estrógen-viðtaka mæling..............
Prógesteron-viðtaka mæling ..........
Samtals
Snemma á árinu 1983 var keypt tölva af
tegundinni Vektor 4000 til þess að skrá nið-
urstöður vefjarannsókna, og var þar með
lögð niður handunnin spjaldskrá.
I lok október 1983 var síðan sett upp út-
stöð frá Skýrsluvélum ríkisins, sem tók við
hlutverki litlu tölvunnar, enda var hún þá
þegar orðin fullnýtt. Litla tölvan var síðan
notuð til þess að skrá krufningar og til að
annast ritvinnslu.
L janúar 1983 var tekið í notkun nýtt
skráningakerfi sjúkdóma, sem er tölfræði-
legt sjúkdómsskráningakerfi, hannað af
bandaríska meinafræðifélaginu, og nefnist
það SNOMED, sem er stytting fyrir orðin
’iSystematized Nomenclature of Medi-
cine“. Þctta kerfi er útfærsla á eldra kerfi,
sem hét SNOP — „Systematized Nomen-
clature of Pathology", en það hefur verið í
uotkun við stofnunina síðan 1965, og var
hún áreiðanlega ein fyrsta stofnunin utan
Bandaríkjanna til að taka það kerfi í notk-
un.
A árinu 1984 voru nánast engar breyting-
ar gerðar á húsnæði aðrar en minni háttar
lagferingar. Á árinu gaf Kvennadeild
Reykjavíkurdeildar Rauða kross íslands
stofnuninni vandað og dýrt tæki, sem notað
er til að undirbúa vefi fyrir skurð og smá-
sjárskoðun.
Á árinu 1985 var sú breyting gerð á hús-
n®ði, að kennslustofu í bráðabirgðahúsi
var breytt í fatageymslu fyrir starfsfólk.
Ennfremur var gerð talsverð endurbót á
loftræstikerfi í rannsóknastofum í bráða-
birgðahúsunum. Keyptir voru 4 rafdrifn-
102 81 83
1
89
______________82
171
ir skurðsleðar af mjög vandaðri gerð
(LEITZ). Skurðsleðar þessir leysa af hólmi
handdrifna sleða, sem hafa reynst mjög
þungir í vöfum. Endurnýjaður var tölvu-
búnaður á deildinni, og eru þar nú tvær
tölvur af gerðinni Corona, og fylgir þeim
prentari til ritvinnslu. Ennfremur eru
nokkrar útstöðvar frá Skýrsluvélum ríkis-
ins, en þar er færð öll þjónustustarfsemi
stofnunarinnar.
Kennsla
Læknar stofnunarinnar annast kennslu í
meinafræði í læknadeild, rannsóknadeild
og námsbrautum í hjúkrun og sjúkra-
þjálfun innan læknadeildar, ennfremur í
meinatæknadeild Tækniskóla íslands.
Sumir hafa einnig kennt við hjúkrunarskól-
ana. Yfirlæknarnir eru báðir prófessorar í
læknadeild, annar í meinafræði og hinn í
réttarlæknisfræði. Hannes Blöndal, pró-
fessor í líffærafræði við læknadeild, annast
taugameinafræði innan stofnunarinnar.
Tveir af sérfræðingum stofnunarinnar eru í
hlutastarfi dósenta í læknadeild og einn í
hlutastarfi dósents í tannlæknadeild.
Markmið kennslunnar í líffærameina-
fræði er að veita nemendum þann skilning
og þá þekkingu í greininni sem æskileg er
fyrir verðandi lækna, tannlækna, hjúkrun-
arfræðinga og sjúkraþjálfara. Til þess að
nálgast það heildarmarkmið hefur verið
reynt að samræma lesefni, fyrirlestra og
prófefni. Misjafnlega hefur tekist til eins og
búast má við, en stúdentar hafa jafnan
verið jákvæðir og oft bent kennurum á mis-