Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1985, Blaðsíða 46
44
Árbók Háskóla íslands
Helstu viðfangsefni tengd
heilbrigðisþjónustu árið 1985
1. Blóðsýni komu frá 5942 sjúklingum, og
voru gerðar tæplega 24 þúsund mismun-
andi rannsóknir á þessum sýnum.
Nokkrar nýjar rannsóknir voru teknar
upp. Má þar nefna greiningu á undir-
flokkum hvítfruma með einvirkum mót-
efnum og próf til að meta hæfni átfruma
til að gleypa og drepa sveppi. Ennfrem-
ur vann Ásbjörn Sigfússon læknir að
uppsetningu geislaskimunarprófs til að
staðsetja í graftarbólgur í sjúklingum.
Notaðar eru geislamerktar hvítfrumur,
og eru þessar rannsóknir gerðar í sam-
vinnu við ísótópadeild Landspítalans.
2. Um 200 sjúklingarvoru metnir á göngu-
deild Landspítalans. Þessum sjúkling-
um var vísað í ónæmisfræðilega rann-
sókn bæði af heimilislæknum og sér-
fræðingum. Ennfremur er einn af
læknum deildarinnar, Kristján Erlends-
son, ráðinn í hlutastarf á lyfjadeild
Landspítalans.
3. í október 1985 var opnaður sérstakur
sími til að svara fyrirspurnum varðandi
eyðni. Mjög margir hafa notað þessa
þjónustu, sem Kristján Erlendsson hef-
ur annast að mestu leyti. Jafnframt hef-
ur verið tekið blóð úr fjölda manns til
mælingar á mótefnum gegn eyðniveir-
unni. Þá var miklum tíma varið til að
fræða heilbrigðisstarfsfólk um eðli
þessa sjúkdóms.
Helgi Valdimarsson
Rannsóknastofa í lyfjafræði lyfsala
Haldið hefur verið áfram rannsóknum á
samtengingu lífrænna efnasambanda, sem
hafa hugsanlega lyfjaverkun, hönnun lyfja-
forma til útvortis notkunar, leysni lyfja í
nærveru yfirborðsvirkra efna og tilraunum,
sem miða að nýtingu íslenskra lágplantna.
Kristín Ingólfsdóttir hefur gert tilraunir
með nýtingu íslenskra lágplantna og kann-
að efnainnihald og möguleika á ræktun ís-
lenskra nytjaþörunga í samvinnu við Haf-
rannsóknastofnun.
Þórdís Kristmundsdóttir hefur rannsak-
að leysni og leysnihraða lyfja í nærveru
yfirborðsvirkra efna við mismunandi sýru-
stig í samvinnu við háskólann í Manchest-
er.
Þorsteinn Loftsson hefur rannsakað
lyfjaform til útvortis notkunar og rannsak-
að virkni lídókaínafbrigða í samvinnu við
rannsóknastofu í lyfjafræði.
Vilhjálmur G. Skúlason hefur unnið að
samtengingu kava laktóna, 4-aryl-kúmar-
ínsambanda (í samvinnu við háskólann í
Hamborg) og afbrigða 2,3-diaryl-2-pro-
penal (tíósemíkarbasóna og karbasóna)
sem hugsanlegs lyfs gegn flogaveiki. Nán-
ari grein er gerð fyrir þessum verkefnum í
Rannsóknaskrá háskólans.
Þá annast rannsóknastofan eins og áður
þjónusturannsóknir fyrir innlenda lyfja-
framleiðendur.
Starfsmenn stofnunarinnar eru: Dr. Vil-
hjálmur G. Skúlason prófessor, sem er for-
stöðumaður, dr. Þórdís Kristmundsdóttir
prófessor, dr. Kristín Ingólfsdóttir, dr.
Þorsteinn Loftsson prófessor, Helga
Skúladóttir lyfjafræðingur og Þóra Grét-
arsdóttir, aðstoðarmaður.
Vilhjálmur G. Skúlason