Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1985, Blaðsíða 47
Læknadeild og fræðasvið hennar
45
Lyfjafræði lyfsala
Á næsta ári, 1987, eru liðin 30 ár síðan
kennsla hófst í lyfjafræði lyfsala í Háskóla
Islands. Pá munu fyrstu kandídatar í lyfja-
fræði (candidatus pharmaciae) útskrifast
eftir 5 ára nám. Væntanlega mun þessi til-
högun bæta mjög menntun lyfjafræðinga á
Islandi, þar sem nú er hægt að sníða námið
að íslenskum aðstæðum, og líkur eru á, að
lyfjafræðingar hugi nú í ríkari mæli en áður
að framhaldsnámi erlendis að loknu kand-
idatsprófi. Jafnframt, með framkvæmd
áætlunar um 5 ára kandídatsnám, hefur
föstum kennurum við deildarhlutann fjölg-
að á þessu tímabili, og hefur prófessor
verið skipaður í lyfjagerðarfræði, og á
næsta leiti er skipun prófessors í eðlis-
lyfjafræði auk margra stundakennara.
Einnig hefur fengist leyfi stjórnvalda til
þess að breyta dósentsstöðu í eina hluta-
stöðu dósents í klinískri lyfjafræði og tvær
hlutastöður lektors í lyfjagerðarfræði og fé-
lagslyfjafræði. Vonir standa til að deildar-
hlutanum verði breytt í deild þegar form-
lega hefur verið gengið frá skipun þriggja
prófessora við deildarhlutann.
Samfara áðurnefndum breytingum á
kennaraliði hafa sáralitlar breytingar orðið
á húsnæði, sem frá upphafi hefur verið
mjög ófullnægjandi. Pó hefur kennslustofu
á lofti íþróttahúss verið breytt í vinnustofu,
og tveimur skrifstofum hefur verið úthlut-
að til starfsmanna deildarhlutans í húsnæði
háskólans við Bjarkargötu.
Nú hefur verið ákveðið að byggja
kennslu- og rannsóknahúsnæði fyrir lyfja-
fræði lyfsala og fyrir framleiðsludeild
Reykjavíkur Apóteks, sem eins og kunn-
ugt mun vera er háskólastofnun í nánum
tengslum við lyfjafræði lyfsala. Skipuð hef-
ur verið sérstök byggingarnefnd og er
hönnunarundirbúningur hafinn. Um bygg-
ingarmál og fleira vísast að öðru leyti til
ársskýrslu Reykjavíkur Apóteks fyrir árið
1985.
Einn gestur heimsótti deildarhlutann,
dr. Nicholas Bodor prófessor, University
of Florida, og flutti hann fyrirlestur um
hönnun lyfja og forlyfja.
Stúdentar á fyrstu fjórum árum kand-
ídatsnámsins eru um 50.
Vilhjálmur G. Skúlason
Tilraunastöð háskólans í meinafræði, Keldum
Starfslið
Nokkur mannaskipti hafa orðið á Til-
raunastöðinni frá 1982. Guðrún Agnars-
dóttir læknir tók sæti á Alþingi vorið 1983,
°g Baldur Símonarson lífefnafræðingur
hætti störfum í árslok 1985 og tók við stöðu
dósents í fullu starfi í læknadeild. í stað
Baldurs var Helgi Sigurðsson dýralæknir,
lic. med. vet., settur í stöðu sérfræðings frá
1- janúar 1986. Valgerður Andrésdóttir,
Bh.D., sameindalíffræðingur, kom til
starfa á árinu 1985 og Eva Benediktsdóttir,
Ph.D, örverufræðingur, í ársbyrjun 1985.
Vala Friðriksdóttir, M.Sc., ónæmisfræð-
ingur, hætti störfum 1984 og Roger E. Lut-
ley líffræðingur snemma árs 1985. Sigríður
Hermannsdóttir lfffræðingur kom til starfa
1984 og Sigríður Hjartardóttir líffræðingur
árið 1985.
Meðal þeirra sem unnu á tímabili á Til-
raunastöðinni um þessi árabil má nefna
Guðmund Guðmundsson líffræðing, Sig-