Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1985, Blaðsíða 48
46
Árbók Háskóla íslands
urð Skarphéðinsson líffræðing, Sigurkarl
Stefánsson líffræðing, Hrafnhildi B. Gunn-
arsdóttur líffræðing, Bryndísi Birnir líf-
fræðing, Guðnýju Eiríksdóttur, M.Sc., líf-
efnafræðing, Þóru Víkingsdóttur líffræðing
og Kjartan Hreinsson dýralækni.
Guðmundur Georgsson, dr. med., fékk
ársleyfi til rannsóknarstarfa við National
Institutes of Health, Bandaríkjunum, frá
15. ágúst 1983, og Þorsteinn Þorsteinsson,
mag. scient., lífefnafræðingur, fór í ársleyfi
til að sinna úrvinnslu úr rannsóknargögn-
um sínum haustið 1985. Guðmundur Pét-
ursson læknir fékk 3 mánaða leyfi til að
sinna rannsóknum við Statens Veterinœre
Serumlaboratorium í Kaupmannahöfn
haustið 1985.
Alls voru unnin 26,7 ársverk á Tilrauna-
stöðinni 1984, þar af 12,5 af háskóla-
menntuðu starfsliði, en 32,2 ársverk alls
árið 1985, þar af 14,2 af fólki með háskóla-
próf.
Viðfangsefni
Verkefni Tilraunastöðvarinnar hafa
mörg verið þau sömu og undanfarin ár, sjá
Árbók Háskóla íslands 1981-82.
I. Framleiðsla bóluefna og sermis
Þessi starfsemi hefur verið með hefð-
bundnu sniði. Fjöldi seldra skammta árið
1985 var sem hér segir:
Garnaveikibóluefni 118 660
Garnapestarbóluefni 164 720
Garnapestarsermi 119 520
Bráðapestarbóluefni 382 400
Lambablóðsóttarbóluefni 765 260
Lambablóðsóttarsermi 197 940
Samtals 1 748 500
Eins og áður hefur Tilraunastöðin látið
Færeyingum í té garnaveikibóluefni í
sauðfé, og nokkrum stofnunum í Indlandi
hefur verið sent slíkt bóluefni án endur-
gjalds. Árið 1985 flutti Tilraunastöðin inn
og seldi 1 037 032 skammta af sníkjudýra-
lyfjum í búfé.
II. Þjónusturannsóknir og ráðgjöf
Þessi starfsemi hefur verið með líku sniði
og undanfarin ár og felst einkum í sjúk-
dómagreiningu með ýmiss konar rann-
sóknum á innsendum sýnum. Vaxandi
áhersla hefur verið lögð á slíka þjónustu
vegna nýrra búgreina, svo sem loðdýra-
ræktar. Mest hefur aukningin þó verið í
rannsóknum á sjúkdómum alifiska, og
fengust þar heimildir til að bæta við starfs-
fólki og sérstök fjárveiting til að innrétta
rannsóknastofuhúsnæði í kjallara, þar sem
áður var vörugeymsla, sem þó virðist
aðeins duga til skamms tíma. Samkvæmt
nýjum lögum er gert ráð fyrir því, að sér-
stök deild með sjálfstæðan fjárhag, rann-
sóknadeild fisksjúkdóma, verði sett á stofn
við Tilraunastöðina.
Fyrirtækið G. Ólafsson hefur nú hafið
útflutning á hormónalyfi úr blóði fylfullra
mera. Hefur Tilraunastöðin látið í té ýmiss
konar þjónustu við þá starfsemi, ýmsar
prófanir á framleiðslu þessari og ráðgjöf.
Aðkallandi er að bæta aðstöðu fyrir til-
raunadýraeldi af þessum sökum, en jafn-
framt vegna þarfa annarra rannsóknastofn-
ana. Starfsmenn Tilraunastöðvarinnar
hafa einnig verið virkir við ýmsar athuganir
og ráðgjöf á sviði líftækni. Starfsmenn
stofnunarinnar annast sem fyrr greiningu
ýmissa sníkjudýra í mönnum og þjónustu
vegna ýmiss konar meindýra.
III. Búfjársjúkdómatilraunir
Haldið er áfram tilraunum til að endur-
bæta garnaveikibóluefnið og ýmsum rann-
sóknum á útbreiðslu sníkjudýra. Árið 1983
fannst hér á landi nýr sullur í sauðfé,
vöðvasullur (Taenia ovis), og hefur út-
breiðsla hans verið könnuð. Jafnframt hef-
ur verið fylgst með hníslum í sauðfé í beit-
artilraun á Auðkúluheiði og unnið að rann-
sóknum á eiturdoppusótt (toxoplasmosis) í