Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1985, Blaðsíða 54
52
Árbók Háskóla íslands
1986
1. Viðhorf hjúkrunarfræðinga til sársauka
hjá sjúklingum.
2. Heilsurækt og heilbrigði.
3. Hvað knýr fólk til að sækja um vistun á
dvalarheimili fyrir aldraða.
4. Könnun á upplifun hjúkrunarfræði-
nema á verknámsdeildum með tilliti til
þeirra stjórnunarstíla, sem þar ríkja.
5. Rannsókn á samstarfi kennara og skóla-
hjúkrunarfræðinga.
6. Viðhorf almennings og hjúkrunarfræð-
inga til sjúkdómsins eyðni.
7. Fagmennska og stéttarvitund íslenskra
hjúkrunarfræðinga.
8. Könnun á breytingum á svefnvenjum og
svefnlyfjanotkun við innlögn á sjúkra-
hús.
Inntaka nemenda og brautskráning
Akveðið var, að hjúkrunarfræðingar
brautskráðir frá Hjúkrunarskóla íslands
eða öðrum hliðstæðum skólum, er starfs-
leyfi hefðu hér á landi, gætu innritað sig í
hjúkrunarfræði í háskólanum, þótt þeir
hefðu ekki lokið stúdentsprófi. Peir teljast
óreglulegir nemendur og hlíta því ekki al-
veg eins ströngum reglum með námsáfanga
og aðrir nemendur. Pó nokkrir hjúkrunar-
fræðingar hafa sest í námsbrautina frá byrj-
un og lokið þaðan B.S.-prófi.
Eins og fram kemur í Árbók 1979-1982
höfðu 93 nemendur lokið prófi í hjúkrunar-
fræði frá háskólanum árið 1982. Frá þeim
tíma er þetta um innritun og brautskrán-
ingu að segja:
Árið 1983 Innritun Braut- skráning
100 23
- 1984 128 33
- 1985 87 32
- 1986 97 58
Árið 1987 er gert ráð fyrir að rúmlega 70
nemendur ljúki B.S.-prófi í hjúkrunar-
fræði.
Á árunum 1985-1986 var unnið að nýrri
námsleið fyrir hjúkrunarfræðinga, er lokið
hafa prófi í hjúkrunarkennslu erlendis eða
kennslufræði frá Kennaraháskóla íslands
og kennt við Hjúkrunarskóla íslands eða
aðra skóla hér á landi. Nám þeirra og
kennslureynsla voru metin og byggð upp
ný námsskrá fyrir þá. Námsefni er mjög
samanþjappað á þeim forsendum, að
fræðileg undirstaða þeirra sé mun meiri en
annarra nemenda. Petta var gert að beiðni
menntamálaráðuneytisins og viðkomandi
kennara. Álitið var, að yfir 20 kennarar
mundu sækja þetta nám, en þeir reyndust
11, er upp var staðið. Pessi námsleið, er við
kusum að kalla námsleið II, tekur yfir þrjú
kennslumisseri og mun verða lokið á árinu
1987. Kennslustjóri er Ingibjörg Þórhalls-
dóttir lektor.
Mat Alþjóðaheilbrigðisstofnunar
Sameinuðu þjóðanna
í byrjun júnímánaðar 1983 kom hingað
til lands dr. Marie Farrell, framkvæmda-
stjóri hjúkrunarmáladeildar Alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar (WHO) í Kaup-
mannahöfn. Hún tók við starfi þar af Dor-
othy C. Hall, er var einn af brautryðjend-
um námsbrautarinnar. Dr. Farrell dvaldist
hér eina viku við að fara yfir og meta starf-
semi námsbrautarinnar og þróun þann ára-
tug, er hún hafði starfað. Það mun vera
venja Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar
að yfirfara verkefni, er hún hefur tekið þátt
í, að ákveðnum tíma liðnum frá upphafi
þess. Sem kunnugt er lagði sú stofnun há-
skólanum til ráðgjöf, kennara og styrki til
íslenskra hjúkrunarfræðinga til náms er-
lendis og átti því verulegan þátt í tilurð
þessarar námsbrautar. Mat sitt sendi dr.
Farrell nokkru síðar, og var það mjög já-
kvætt í alla staði, hvatning til kennara og
nemenda til nýrra átaka.
Ingibjörg R. Magnúsdóttir