Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1985, Blaðsíða 55
Læknadeild og fræðasvið hennar
53
Námsbraut í sjúkraþjálfun
Húsnæðismál
Haustið 1983 flutti námsbraut í sjúkra-
þjálfun í nýtt leiguhúsnæði á Vitastíg 8,
2.-4. hæð. Aðstaða til kennslu batnaði
nokkuð við þetta, þar eð kennslustofum
fjölgaði úr 3 í 4. Meiri hluti kennslunnar fer
nú fram í húsnæði námsbrautarinnar, og
þurfa nemendur því ekki að sækja kennslu
annars staðar í jafnríkum mæli og áður.
Aðstaða fyrir kennara er þannig, að tvær
skrifstofur eru fyrir 6 kennara í 4 stöðum.
Auk þess er skrifstofa fulltrúa, fundar- og
seminarherbergi, ein kaffistofa fyrir nem-
endur og kennara og bókasafn sem jafn-
framt er lesstofa.
í byrjun árs 1986 losnaði 1. hæð hússins.
Námsbrautarstjórn lagði þá til að háskól-
inn tæki hana á leigu til reksturs göngu-
deildar í sjúkraþjálfun. Þannig mætti fjölga
námsplássum í verkmenntun, en skortur á
þeim hefur alltaf háð námsbrautinni. Hús-
næðið reyndist of dýrt til að þessi lausn væri
framkvæmanleg.
Námsbrautarstjórn hefur ítrekað látið í
ijós þá afstöðu, að framtíðarstaðsetning
námsbrautarinnar verði í nánum tengslum
viö kennsluaðstöðu í læknisfræði (m.a. líf-
færafræði og sjúkdómafræði) og kennslu-
sjúkrahús, sem hefur augljósa kosti í för
nreð sér fyrir „kliníska“ kennslu. Auk þess
v®ri samnýting á húsnæði, kennslu- og
rannsóknartækjum og bókasafni möguleg.
Námsbrautarstjórn fór fram á í mars 1984,
aö háskólaráð beitti sér fyrir því, að fram-
h'ðarhúsnæði námsbrautarinnar verði í
byggingu háskólans á Landspítalalóðinni.
Kennarar
Fastráðnir kennarar eru:
Ella Kolbrún Kristinsdóttir dósent. Hún
var í rannsóknarleyfi haustmisseri 1982 og
haustmisseri 1983 og stundaði þá rannsókn-
,r við Panum Institutet í Kaupmannahöfn.
María Ragnarsdóttir lektor, formaður
námsbrautarstjórnar 1982-1986.
María H. Þorsteinsdóttir lektor. Hún var
í rannsóknarleyfi vor- og haustmisseri 1985
og stundaði þá framhaldsnám við háskól-
ann í Sydney í Ástralíu.
Hilmir Ágústsson lektor, í % stöðu.
1. febrúar 1986 fékk námsbrautin 1 lekt-
orsstöðu til ársloka. Jakobína E. Sigurðar-
dóttirogSigrún E. Einarsdóttir sjúkraþjálf-
arar voru settar í þá stöðu.
Stjórnun
Engar breytingár hafa orðið á stjórnun
námsbrautarinnar á þessu tímabili. En í
ársbyrjun 1985 fékkst leyfi til að ráða full-
trúa í A starf, og tók hann til starfa 1. mars
það ár. Minnkar þetta óneitanlega vinnu-
álag fastráðinna kennara, sem höfðu óeðli-
lega mikla stjórnunarbyrði, og verður
ásamt fjölgun kennara vonandi til þess, að
hægt verður að stunda rannsóknir við
námsbrautina meira en aðstæður hafa leyft
hingað til.
Rannsóknarverkefni
Ella Kolbrún Kristinsdóttir dósent:
Samanburður á hreyfingum, vöðvavinnu,
vinnu og álagi á liði neðri útlima í mismun-
andi lyftitækni. Samanburður á álagi á liði
og vöðvavinnu, þegar gengið er upp og nið-
ur stiga á mismunandi vegu. Rannsóknir á
hraðabreytingum í venjulegum hreyfing-
um.
María Ragnarsdóttir lektor: Tölvuforrit
til notkunar við starfsemi, rannsóknir og
kennslu í sjúkraþjálfun.
María H. Þorsteinsdóttir lektor: Sjúkra-
þjálfun í heilsugæslu (sjá nánar ritið Rann-
sóknir við Háskóla íslands 1985-1986, bls.
165-167).
Fjöldi stúdenta
Á þessu tímabili voru teknir inn 18 nem-
endur ár hvert, og er ástæðan enn sem fyrr