Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1985, Blaðsíða 66
64
Árbók Háskóla íslands
og Þorsteinn Hilmarsson, M.A., vinna nú
að þessu verki undir stjórn Þorsteins Gylfa-
sonar.
Útgáfur
Stofnunin hefur séð um eða átt hlut að
útgáfu eftirtalinna rita:
Platón: Menón, skólaþýðing eftir Svein-
björn Egilsson með inngangi og skýringum
eftir Eyjólf Kjalar Emilsson og Gunnar
Harðarson. Reykjavík, Hið íslenska bók-
menntafélag 1985.
Erlendur Jónsson: Rökfrœði, Reykjavík
1985.
Matthew Lipmann: Uppgötvunin hans
Ara, í þýðingu Hreins Pálssonar. Reykja-
vík 1986.
Sigurður Nordal: Einlyndi og marglyndi.
Þorsteinn Gylfason og Gunnar Harðarson
sáu um útgáfuna. Reykjavík, Hið íslenska
bókmenntafélag 1986.
Eyjólfur Kjalar Emilsson: Plotinus on
Sense-Perception, væntanleg hjá Cam-
bridge University Press.
Húsnæði
Stofnunin hefur ekkert eigið húsnæði og
ekkert bókasafn. Hún hefur síðastliðið ár
haft afnot af skrifstofu prófessors í heim-
speki í aðalbyggingu háskólans.
Fjármál
Heimspekistofnun hefur notið fjárveit-
inga á fjárlögum, úr Vísindasjóði og frá
UNESCO.
Gunnar Harðarson
Bókmenntafræðistofnun
Bókmenntafræðistofnun hét áður Rann-
sóknastofnun í bókmenntafræði, en nafni
hennar var breytt í núverandi mynd árið
1983. Meginviðfangsefni þessarar stofnun-
ar eru:
- Að annast rannsóknir á íslenskum og al-
mennum bókmenntum.
- Að annast úgáfu bókmenntatexta og
fræðirita um íslenskar og almennar bók-
menntir.
Stjórn stofnunarinnar er skipuð tveimur
mönnum, sem kosnir eru af heimspeki-
deild til tveggja ára í senn úr hópi fastráð-
inna háskólakennara í þeim greinum sem
heyra undir stofnunina, svo og einum stúd-
ent sem kosinn er til eins árs af Félagi stúd-
enta í almennri bókmenntafræði og Mími,
félagi stúdenta í íslenskum fræðum. Stjórn-
in kýs sér formann til tveggja ára í senn, og
er hann jafnframt forstöðumaður stofnun-
arinnar.
Stjórn stofnunarinnar 1982-83 skipuðu:
Bjarni Guðnason prófessor, forstöðumað-
ur, ásamt Nirði P. Njarðvík dósent og Vil-
hjálmi Sigurjónssyni, sem var fulltrúi stúd-
enta. Árin 1984-85 skipuðu stjórn: Vé-
steinn Ólason dósent, forstöðumaður,
ásamt Davíð Erlingssyni dósent og fulltrúa
stúdenta, Vilhjálmi Sigurjónssyni. Haustið
1985 fékk Vésteinn Ólason leyfi til þriggja
ára, og tók Helga Kress dósent við sæti
hans í stjórn frá 1. ágúst. í stjórn stofnunar-
innar frá áramótum 1986 sitja Álfrún
Gunnlaugsdóttir, forstöðumaður, Helga
Kress og Halla Kjartansdóttir, sem er full-
trúi stúdenta.
Fjármál
Stofnuninni er úthlutað fé á fjárlögum
ríkisins. Auk þess hefur hún haft örlitlar
tekjur af bókaútgáfu, og svo hefur Vísinda-
sjóður styrkt stofnunina þegar viðamikil
verkefni hafa verið á döfinni.
Rannsóknir og útgáfustarfsemi.
Stofnunin gefur út þrjár ritraðir: