Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1985, Blaðsíða 67
Heimspekideild og fræðasvið hennar
65
a) íslensk rit. Ritstjórn annast Njörður P.
Njarðvík og Davíð Erlingsson, sem
kom í stað Vésteins Ólasonar, en hann
hætti í ritstjórninni 1985.
h) Studia Islandica. Ritstjórn annast
Sveinn Skorri Höskuldsson.
Þessar tvær ritraðir eru gefnar út í
samvinnu við Bókaútgáfu Menningar-
sjóðs.
c) Fræðirit. Stjórn stofnunarinnar annast
ritstjórn, og hefur ritröðin verið gefin út
í samvinnu við Hið íslenska bókmennta-
félag, en síðasta bindi þessarar raðar gaf
stofnunin út sjálf.
Stærsta verkefnið, sem nú er unnið að
hjá Bókmenntafræðistofnun, er íslensk
bókmenntaskrá sem er tölvuunnið bók-
fræðiverk um íslenskar bókmenntir og það
sem um þær hefur verið ritað. Þaðer skipu-
lagt eftir kerfi sem á að tryggja, meðal ann-
ars, að unnt verði að kalla þaðan fram bók-
fræðilega vitneskju frá hvaða tölvubúnu
bókasafni sem er í landinu í framtíðinni,
Því að skipulagið er gert í samræmi við það
kerfi sem verður á skráningum Landsbóka-
safns og Þjóðarbókhlöðu. Kristín Braga-
dóttir bókasafnsfræðingur hefur umsjón
nteð þessu verki.
Eftirtalin verk hafa komið út á vegum
stofnunarinnar árin 1982-86:
Hugtök ogheiti íbókmenntafrœði. Jakob
Benediktsson ritstýrði. Rvik 1983.
a) íslensk rit:
VIII. bindi.
Benedikt Gröndal, Ljóðmœli. Úrval.
Kristinn Jóhannesson bjó til prentunar.
b) Studia Islandica:
42. hefti.
Kjartan G. Ottósson, Fróðárundur í
Eyrbyggju. Rvík 1983.
43. hefti.
Hermann Pálsson, Áhrif Hugsvinns-
mála á aðrar fornbókmenntir. Rvík
1985.
44. hefti.
Matthías Viðar Sæmundsson, Ást og út-
legð. Form og hugmyndafræði í ís-
lenskri sagnagerð 1850-1920. Rvík
1986.
45. hefti.
Þórir Óskarsson, Benedikt Gröndal.
Fagurfræði hans og ljóðlist. Rvík 1986.
c) Frœðirit:
6. bindi.
Jón Viðar Jónsson, Leikrit á bók. Um
lestur og greiningu leikbókmennta.
Rvík 1985.
Bókmenntastofnun gaf út fjórðu ritröð-
ina, B.A.-ritgerðir í íslenskum bókmennt-
um ogalmennri bókmenntafrœði. Varþessi
ritröð fjölrituð í litlu upplagi og stóð stofn-
unin ein undir öllum kostnaði. Þar sem
fjárveitingar til Bókmenntafræðistofnunar
hafa farið síminnkandi að kaupmætti á
undanförnum árum, hefur hún ekki séð sér
fært að halda áfram þessari útgáfu. Af
sömu ástæðu hefur stofnunin neyðst til að
draga saman seglin á öðrum sviðum.
Álfrún Gunnlaugsdóttir
Sagnfræðistofnun
Sagnfræðistofnun Háskóla íslands hét
aður Rannsóknastofnun í sagnfræði, en
Waut nýtt nafn með nýrri reglugerð 1. mars
J-V83. Um leið var létt af stofnuninni því
hlutverki að annast kennslu í sagnfræði.
Það var hagræðingaratriði, því að áður
heyrði kennslan undir námsnefnd í sagn-
fræði, stjórn Sagnfræðistofnunar og heim-
spekideild, og þurfti því samþykki þriggja
aðila til að kennsluskrá í greininni gengi í