Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1985, Blaðsíða 113
Verkfræði- og raunvísindadeild og fræðasvið hennar
111
það var í jafnvægi við umhverfi sitt. Er
þetta afar mikilsvert við rannsóknir á jarð-
hita og á rennslisleiðum kalds grunnvatns.
Háloftadeild
Háloftadeild jarðeðlisfræðistofu rekur
segulmælingastöð í Leirvogi í Mosfells-
sveit. Mælitæki í stöðinni skrá breytingar á
ýmsum þáttum segulsviðs jarðar. Sumar
þessara breytinga eru snöggar og orsakast
af rafagnastraumum frá sólu, en aðrar
hægfara breytingar má rekja til jarðkjarn-
ans.
Myndir af segulritum og tölulegar upp-
lýsingar frá stöðinni í Leirvogi eru mikið
notaðar af erlendum rannsóknastofnunum
1 háloftafræðum. Einnig eru þær notaðar
v>ð leiðréttingu á áttavitastefnu á sjókort-
um og flugkortum. Nú er unnið að veruleg-
um endurbótum á tækjakosti stöðvarinnar
hl að auka sjálfvirkni í mælingum og í frum-
v*nnslu gagna.
Síðan 1983 hefur háloftadeild notið góðs
af samvinnu við Pólrannsóknastofnun Jap-
ans og veitt aðstoð við rekstur þriggja
stöðva sem Japanir hafa komið upp hér á
'andi til norðurljósarannsókna.
Almanak Háskólans (íslandsalmanakið)
er reiknað og búið til prentunar á hálofta-
deild, en það hefur nú komið út árlega í 150
ár. Hvers konar dagatalaútgáfa í landinu
hyggist á þessu almanaki. Síðan 1985 hefur
háloftadeild séð um dreifingu almanaksins
ril bóksala.
Segulmögnun bergs og
flugsegulmælingar
Segulsvið jarðar hefur þann sérkenni-
lega eiginleika, að stefna þess snýst all-
snögglega við með óreglulegu millibili, að
meðaltali um tíu sinnum á hverri milljón
ára. Þennan eiginleika má nýta við kort-
lagningu hraunlaga með tilliti til aldurs og
höggunar, því að hvert lag varðveitir í sér
segulstefnu þess tíma þegar það storknaði.
Jarðeðlisfræðistofa hefur séð um bergseg-
ulmælingar í mörgum verkefnum við kort-
lagningu íslenskra jarðlaga, í samvinnu við
erlenda aðila og jarðfræðinga Náttúru-
fræðistofnunar og Orkustofnunar. Um leið
hafa aflast ýmsar upplýsingar um hegðun
jarðsegulsviðsins, sem nýtast í túlkun sam-
bærilegra mælinga á jarðmyndunum er-
lendis. Um árabil hafa verið gerðar ítarleg-
ar segulmælingar úr flugvél yfir íslandi, og
lauk Raunvísindastofnun útgáfu korta af
niðurstöðum þeirra 1985. Úr mælingunum
fæst margs konar vitneskja um gerð og
sögu jarðmyndana landsins og landgrunns-
ins. Únnið er að því að koma öllum þessum
mælingum í tölvutækt form til frekari úr-
vinnslu, og hafnar eru flugsegulmælingar
með nýjum tækjakosti yfir nokkrum áður
ómældum svæðum.
Leó Kristjánsson
Páll Einarsson
Sveinbjörn Björnsson
5. Reiknifræðistofa
Helstu rannsóknasvið sem heyra undir
reiknifræðistofu eru tölvunarfræði, að-
Serðargreining, tölfræði og töluleg grein-
'rrg.
Forstöðumaður reiknifræðistofu er
hven f>, Sigurðsson dósent. Aðrir fastir
kennarar raunvísindadeildar sem starfa við
stofuna eru prófessorarnir Oddur Bene-
diktsson, Jóhann P. Malmquist og Þorkell
Helgason, Ottó J. Björnsson dósent,
Snorri Agnarsson lektor og Magnús Magn-
ússon, prófessor í eðlisfræði. Þá starfa nú
við stofuna sérfræðingarnir Björn Birnir,
Snjólfur Ólafsson og Kjartan G. Magnús-