Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1985, Blaðsíða 126
124
Árbók Háskóla íslands
velunnara deildarinnar, bæði einstaklinga
og fyrirtækja, til eflingar ritakosti Háskóla-
bókasafns. Söfnunin skilaði jafnvirði 628
þúsunda króna í peningum og áskriftar-
loforðum. Söfnunin gerði kleift að taka 32
tímarit í áskrift og að halda þeim i áskrift í
a.m.k. 10 ár.
Þórir Einarsson
Tannlæknadeild og fræðasvið hennar
Inngangur
í 1. gr. laga um Háskóla íslands segir svo
um hlutverk hans: „Háskóli íslands skal
vera vísindaleg rannsóknarstofnun og vís-
indaleg fræðslustofnun, er veiti nemendum
sínum menntun til þess að sinna sjálfstætt
vísindalegum verkefnum og til þess að
gegna ýmsum embættum og störfum í þjóð-
félaginu."
I 106. gr. sömu laga segir svo um tann-
læknadeild: „Til kennslu í tannlæknisfræði
heyra þær greinar er varða fræðasvið henn-
ar á hverjum tíma. Til fræðasviðs tann-
læknisfræðinnar telst allt, sem tengist gerð
og starfsemi tyggingafæra mannslíkam-
ans.“
Tannlæknadeild hefur því þeirri skyldu
að gegna að mennta tannlækna til þess mik-
ilvæga starfs að gæta í hvívetna og bæta
munnheilsu þjóðarinnar. Svo því mark-
miði verði náð er ekki einungis nægjanlegt
að deildin útskrifi tannlækna með staðgóða
þekkingu í að fyrirbyggja og meðhöndla
sjúkdóma í munni og tönnum. Henni ber
einnig skylda til þess að afla með rannsókn-
um á tannheilsu og tannþroska þjóðarinnar
sem víðtækastrar þekkingar, svo að á þeim
grunni megi skipuleggja og bæta tann-
heilsugæslu hennar.
Staða
Kennsla í undirstöðugreinum (preklin-
ísk), sem tekið hefur mestan hluta náms-
tímans fyrstu þrjú námsárin í deildinni,
hefur frá upphafi að hluta farið fram á veg-
um læknadeildar, en að nokkru leyti á veg-
um tannlæknadeildar og nú síðustu ár einn-
ig á vegum raunvísindadeildar. Fastráðnir
kennarar lækna- og raunvísindadeilda hafa
annast þessa kennslu, en aðallega þó
stundakenarar deildanna.
í þær tvær hæðir Tanngarðs, sem ætlaðar
voru tannlæknadeild í þessari stóru og
glæsilegu byggingu háskólans að Vatns-
mýrarvegi 16, var loks hafinn flutningur
tannlæknadeildar í upphafi árs 1983.
Kennsla hófst þó ekki fyrr en um miðjan
mars vegna ýmissa vandamála í sambandi
við tæki og hús.
Saga tannlæknadeildar í nýju húsnæði er
sú, að með ofnýtingu allrar vinnuaðstöðu
er hægt að veita kennslu þeim 8 tannlækna-
nemum, sem heimilað er að halda áfram
námi á 2. námsári eftir lok samkeppnis-
prófs í lok 1. námsmisseris, en ekki öðrum.
Þessi þrengsli eru svo mikil, að ef nemanda
seinkar í námi skapar það meiriháttar
vandamál og jafnvel niðurskurð hjá þeim
árgangi sem næstur er á eftir.
Frá upphafi kennslu í tannlækningum
við Háskóla íslands 1947 og fram til janúar-
loka 1986 hafa 157 stúdentar lokið brottfar-
arprófi í tannlækningum frá tannlækna-
deild, og tveir tannlæknar hafa lokið dokt-
orsprófi.
Góður tækjabúnaður og aðstaða er fyrir
hendi til menntunar tannlækna og tann-
smiða í þessu nýja húsnæði, en fjöldi tann-
læknanema er of mikill. Kennsla fyrir tann-
smíðanema er enn ekki hafin í lok árs 1985
vegna skorts fjárveitinga. Engin leið er enn
til þess að mennta aðstoðarstúlkur og