Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1985, Blaðsíða 132
130
Árbók Háskóla íslands
og er það í samræmi við þróunina í öðrum
deildum háskólans. Þannig hefur konum
fjölgað um 216, eða rúmlega 134%, á þeim
tíu árum sem deildin hefur starfað. Körlum
hefur aðeins fjölgað um 9, eða tæplega 7 af
hundraði, á sama tíma. Þegar nánar er að
gáð kemur í ljós að vaxandi aðsókn kvenna
að deildinni á m.a. rætur að rekja til þess,
að þrjár kennslugreinar við deildina, þ e-
bókasafns- og upplýsingafræði, félagsráð-
gjöf og uppeldisfræði til B.A.-prófs, draga
að sér mun fleiri konur en karla. Einnig
hefur konum fjölgað hlutfallslega í öllum
greinum.
Tafla 2 sýnir skiptingu nemenda deildar-
innar eftir kyni á árunum 1976-1986.
Tafla 2
Nemendafjöldi í félagsvísindadeild á árunum 1976-1986
Háskólaár Stúdentafjöldi alls Nýskráðir stúdentar
Konur Karlar Alls Konur Karlar Alls
1976-1977 161 133 294 67 50 117
1977-1978 156 112 268 65 42 107
1978-1979 207 124 331 88 44 132
1979-1980 244 155 399 124 72 196
1980-1981 252 141 393 98 43 141
1981-1982 312 165 477 139 75 214
1982-1983 352 168 520 147 71 218
1983-1984 364 178 542 177 82 259
1984-1985* 449 172 621 179 63 242
1985-1986 377 142 519 134 58 192
*Þessar tölur eru byggðar á fjölda nemenda í maíbyrjun 1985, en aðrar tölur í töflunm
eru frá byrjun mars viðkomandi ár. Engar innritanir eiga sér stað milli þessara tímabila,
en samt má reikna með einhverri hreyfingu.
Á þeim 10 árum sem félagsvísindadeild
hefur starfað hafa 895 nemendur útskrifast
frá deildinni. Tafla 3 gefur yfirlit yfir þessa
nemendur eftir greinum og útskriftarárum.
Nemendur útskrifaðir úr félagsvísinda-
deild hafa í framhaldsnámi lagt stund á hin-
ar ólíkustu greinar: gagnaúrvinnslu, töl-
fræði, stjórnun fyrirtækja, opinbera stjórn-
sýslu, tölvunarfræði, vinnusálarfræði,
blaðamennsku, fjölmiðlafræði, iðnfélags-
fræði, svo nokkur dæmi séu tekin.
Þeir sem hafa ekki farið í framhaldsnám
hafa að námi loknu fengið vinnu við hin
fjölbreytilegustu störf bæði hjá hinu opin-
bera og eins á hinum frjálsa markaði. Þeir
starfa við blaðamennsku, kennslu, stjórn-
unarstörf, markaðsrannsóknir, markaðs-
færslu, gagnavinnslu og rannsóknarstörf
ýmiss konar.
Félagsvísindastofnun
Við félagsvísindadeild Háskóla íslands
hefur verið sett á fót rannsóknastofnun,
Félagsvísindastofnun H.Í., samkvæmt
reglugerð menntamálaráðherra frá 11. júm
1985. Stofnunin mun annast fræðilegaf
rannsóknir í félagsvísindum, en auk þess
mun hún taka að sér rannsókna- og ráð-
gjafarverkefni fyrir aðila utan háskólans.
Félagsvísindastofnun hefur ekki fasta fját'
veitingu frá hinu opinbera til að kosta
reksturinn, en stefnt er að því að starfsemm