Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1985, Blaðsíða 193
Annáli
191
1985 — var fullbúið á haustmisseri 1984 og
hafði verið 5 ár í smíðum. Laugardaginn
23. febrúar 1985, síðdegis, var þar „opið
hús“ og starfsfólki háskólans sýnt húsið.
Fr.br. H.í. 1984,6; 1985,1
»Endurmenntunarnefnd“
A vegum „Endurmenntunarnefndar“
hafa verið haldin mörg námskeið í ýmsum
greinum til endurmenntunar eða símennt-
unar háskólafólki.
Endurmenntunarstjóri er Margrét S.
Björnsdóttir.
Endurmenntunarstarfið er unnið í sam-
starfi við Bandalag háskólamanna, Tækni-
skóla íslands, Verkfræðingafélag íslands,
Tæknifræðingafélag íslands og Hið ís-
lenska kennarafélag.
A því tímabili sem hér um ræðir voru
haldin á vegum endurmenntunarnefndar
°g oft í samvinnu við aðila utan háskólans
alls 28 námskeið með 586 þátttakendum,
eitt málþing með 32 þátttakendum, tveir
kynningarfundir með 275 þátttakendum,
auk eins opins fyrirlesturs.
Starfsemin er að mestu fjármögnuð með
þátttökugjöldum.
Útvarpsfyrirlestrar
Haldið var áfram að kynna almenningi
rannsóknir og fræði með reglulegum
utvarpsfyrirlestrum á sunnudögum kl.
16.20-17.00. Dr. Páll Skúlason og dr. Stef-
án Ólafsson sáu um framkvæmdina.
Fr.br. H.í. 1984,6
Háskólatónleikar
Að vanda voru Háskólatónleikar haldnir
1 hádeginu í Norræna húsinu.
sióöur Níelsar Dungals og starfsemi
hans
Samkvæmt tillögu Ólafs Bjarnasonar
Prófessors voru á fundi í læknadeild Há-
skóla íslands 1. október 1968 samþykkt
drög að skipulagsskrá fyrir sjóð Níelsar
Dungals prófessors. Páverandi heilbrigðis-
ráðherra, síðar forsætisráðherra, Jóhann
Hafstein, gekkst fyrir því að heimilað var
að til sjóðsins mættu renna tekjur af sölu
bráðapestarbóluefnis til Færeyja frá Rann-
sóknastofu háskólans í meinafræði. En svo
sem kunnugt er hafði prófessor Níels
Dungal á sínum tíma fundið nýja aðferð til
framleiðslu á þessu bóluefni sem reyndist
vel og er enn í notkun á íslandi og í Færeyj-
um.
Forseti Islands staðfesti síðan skipu-
lagsskrá sjóðsins, og fer hún hér á eftir:
Skipulagsskrá fyrir Sjóð Níelsar Dungals
prófessors
1. gr.
Sjóðurinn heitir Sjóður Níelsar Dungals
prófessors. Sjóðurinn er stofnaður með
framlagi frá Rannsóknastofu Háskólans í
meina- og sýklafræði og fær árlegar tekjur
frá þeirri stofnun samkvæmt ákvörðun
hlutaðeigandi stjórnvalda hverju sinni.
2. gr.
Sjóðurinn er eign Háskóla íslands, og er
varsla hans og ávöxtun í höndum rektors og
háskólaráðs samkvæmt þeim almennu
reglum, er gilda um sjóði Háskólans.
3. gr.
Stjórn sjóðsins er skipuð þremur mönn-
um, prófessornum í meinafræði við Há-
skóla íslands, sem er formaður stjórnar-
innar, einum manni, er læknadeild tilnefn-
ir, og öðrum er háskólaráð nefnir til.
4. gr.
Tilgangur sjóðsins er að bjóða til fyrir-
lestrahalds við Háskóla íslands íslenskum
eða erlendum fræðimönnum, og skulu
fyrirlestrarnir tengdir nafni prófessors Ní-
elsar Dungals.
5. gr.
Reikningar sjóðsins skulu endurskoðað-