Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1985, Blaðsíða 197
11
Háskólabókasafn
Yfirlit það, sem hér fer á eftir, tekur til
almanaksáranna 1984 og 1985. Áður hafa
komið út ársskýrslur Háskólabókasafns
fyrir hvort þessara ára um sig. Hér er því
um að ræða samsteypu og um leið útdrátt
Ur þessum tveimur skýrslum, sem báðar
eru fáanlegar í safninu.
1- Inngangur —
Árin 1984 og 1985 voru ár varnarbaráttu
fyrir Háskólabókasafn. Ritaöflun var svip-
uð og fyrri ár og vegna húsnæðisþrengsla
Varð ekki hjá því komist að halda áfram að
flytja bækur og tímarit í geymslur fjarri
Aókasafninu. Við slík skilyrði er þess ekki
að vænta, að notkun glæðist, enda tók nú
fyrir þá aukningu útlána, sem verið hefur
flest undanfarin ár.
Hins vegar gerðist ýmislegt það á árinu
sem telja má vísbendingu þess, að
ojartari tíð sé fram undan varðandi bóka-
safnsmál háskólans. Töluverð umræða
varð um hag safnsins í tengslum við rekt-
°rskjör í apríl, svo og á ráðstefnu um Þjóð-
arbókhlöðu í október. Mestar vonir voru
Pó bundnar við þá yfirlýsingu Sverris Her-
'rtannssonar menntamálaráðherra, að á
Vegum ríkisstjórnarinnar væri tilbúin áætl-
Un um útvegun fjár til að ljúka byggingu
jóðarbókhlöðu á næstu þremur til fjórum
arum. Nánari frásögn af því máli og öðrum
ráðstöfunum til eflingar Háskólabókasafns
'ður þó frásagnar í næstu Árbók.
2. Starfslið
Háskólabókavörður: Einar Sigurðsson
cand. mag.
Aðstoðarháskólabókavörður: Þórir
Ragnarsson Dip. Lib.
Bókaverðir: Áslaug Agnarsdóttir cand.
mag. (sem staðgengill Óskars Á. Óskars-
sonar til 1. september 1985, síðan lausráðin
í hálft starf), Auður Gestsdóttir B.A. (í
tveimur þriðju hlutum starfs bæði árin, þar
af fastráðin í hálft starf frá 1. júní 1985),
Guðrún KarlsdóttirDip. Lib. (ílaunalausu
leyfi að einum þriðja bæði árin), Halldóra
Þorsteinsdóttir lic. és lettres, Ingibjörg
Árnadóttir B.A., Ingibjörg Sæmundsdótt-
ir B.A. (hálft starf, launalaust leyfi 1. júní
til 31. desember 1984), Óskar Árni Óskars-
son (í launalausu leyfi frá 1. september 1983
til 1. september 1985), Sigbergur Friðriks-
son B.Á., Sigríður Lára Guðmundsdóttir
cand. mag., Sólveig Ögmundsdóttir B.A.
(hálft starf, lausráðin til 1. júní 1985, síðan
fastráðin), Porleifur Jónsson Ph.D. (hálft
starf).
Ritarar: Rósfríður Sigvaldadóttir (til 15.
aprfl 1984), Helga Guðmundsdóttir (5.
aprfl — 31. ágúst 1984), Ingibjörg Hilmars-
dóttir (1. september 1984 — 30. júní 1985),
María Henley (frá 7. nóvember 1985).
Auk þess sem að ofan er talið unnu all-
margir lausráðnir starfsmenn í safninu á
tímabilinu, flestir minna en hálfan vinnu-
dag eða skamman tíma í senn. Þessir unnu
sem nemur hálfri vinnu eða meira: Anna