Árbók Háskóla Íslands - 30.12.2005, Blaðsíða 44
• Rannsóknir - rannsóknavirkni. ritaskrá, rannsóknasjóðir.
• Starfsmannamál - starfsþróun, réttindi og fræðsla.
Alþjóðaskrifstofa háskólstigsins heyrirskipulagslega undir akademíska stjórn
sýslu en ersjálfstæð rekstrareining í reikningshaldi Háskólans.
Rannsóknaþjónusta
Háskólans starfar í nánum tengslum við rannsóknasvið en heyrir undir háskóta-
ráð og er sjálfstæð rekstrareining í reikningshaldi Háskólans.
Starfsnefndir háskólaráðs tengdar akademískri stjórnsýslu eru jafnréttisnefnd.
kennslumálanefnd og vísindanefnd.
Stjórnsýsla. lög og reglur
Almennt
Á sviði stjórnsýslu er eitt meginverkefnið að hafa umsjón með að ákvörðunum
háskólaráðs og rektors sé framfylgt í samræmi við gildandi lög og reglur. Þá hef-
ur skrifstofa akademískrar stjórnsýslu með höndum samningagerð fyrir hönd
Háskóla íslands í mörgum málefnum, breytingará lögum og regtum Háskólans
og setningu nýrra reglna. Veitt er lögfræðileg ráðgjöf við framkvæmd stjórnunar-
legra viðfangsefna og höfð umsjón með fjárhagsáætlun akademískrar
stjórnsýstu, stöðu einstakra eininga og skiptingu fjárveitingar á milli þeirra. Verk-
efnum á sviði jafnréttismála og skjatsafns er lýst sérstaklega aftar í þessum
kafla.
Lög og reglur
Árið 2005 altmargar breytingar voru gerðar á heildarreglum skólans. sbr. yfirlit
sem birt er á heimasíðu.
Kennslumál, stúdentar.
brautskráningar
Helsta verkefni kennslusviðs er að annast sameiginleg mál Háskólans er varða
kennslu. próf, skráningu stúdenta, kennsluhúsnæði og búnað. Á vegum þess er
jafnframt starfrækt Tungumálamiðstöð, Kennslumiðstöð og Námsráðgjöf sem
sérstakar deildir.
Háskólaárið telst frá 1. júlí til jafnlengdar næsta ár og skiptist kennstuárið í tvö
misseri, haustmisseri sem lýkur 21. desember og vormisseri sem lýkur 15. maí.
Nýskráning fer fram í lok maí og byrjun júní ár hvert og einnig er tekið við skrán-
ingarbeiðnum í byrjun janúar. Þrjár brautskráningar kandídata tilheyra hverju há-
skólaári, í febrúar, júní og október.
Áfram var beitt aðhaldsaðgerðum vegna fjölda stúdenta við Háskólann. Háskóla-
ráð ákvað í mars 2005 að heimild til að veita undanþágur frá inntökuskilyrðum
Háskólans yrði ekki nýtt háskólaárið 2005-2006. Einnig samþykkti háskólaráð að
ekki yrðu veittar neinar undanþágur frá skráningartímabili árlegrar skráningar í
mars 2005 og greiðslu skrásetningargjatda eða vegna nýskráninga og greiðstu
skrásetningargjalds eftir 5. júní 2005.
Kennsluskrá, nemendaskrá, námskeið og próf
í Kennsluskrá Háskólans eru tilgreind öll námskeið sem kennd eru við skólann
og skipulag námsins. Lýsingar námskeiða eru aðgengilegar á:
www.hi.is/nam/namsk Samtals eru á skrá um 4.000 námskeið (ýmist kennd
námskeið, verkefni eða ritgerðir) í ellefu deildum, en þar af voru um 2.000 virk á
árinu. Af kenndum námskeiðum voru 281 kennd á ensku. Skipulagðar námsleiðir
í grunnnámi eru 143 (nám til fyrsta háskólaprófs. nám til diptómaprófs og 30 ein-
inga aukagreinar). til meistaraprófs 86 og 39 til doktorsprófs. Auk þess er boðið
upp á starfsmiðað nám að lokinni fyrstu háskólagráðu á 20 námsleiðum.
Náin samvinna er um erlend samskipti við Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins og á
milli kennslusviðs. rannsóknasviðs, kennslumálanefndar. vísindanefndar og al-
þjóðasamskiptaráðs.
40