Árbók Háskóla Íslands - 30.12.2005, Blaðsíða 99
Boðið var upp á fjarnám í framhaldsnámi í opinberri stjórnsýslu í samvinnu við
Kennslumiðstöð HÍ og geta nemendur lokið 15 eininga diplómanámi með því
móti.
Þá bauð deildin nemendum upp á 2ja kvölda námskeið um gerð lokaritgerða.
Þátttaka var nemendum að kostnaðarlausu og námskeiðin voru hatdin í febrúar
°g september.
Kynningarmál
Deildin hefur gefið út kynningarbæklinga um allar námsgreinar í deildinni ásamt
ve9gspjötdum og glærukynningu. Sérstök handbók er einnig gefin út fyrir nem-
endur í framhaldsnámi. Deildin tók einnig þátt í námskynningu HÍ 27. febrúar
ásamt öðrum deildum Háskótans.
þá voru haldnar sérstakar námskynningar í Odda fyrir stúdentsefni úr framhalds-
skólum. Nemendur úr félagsvísindadeitd fóru einnig í framhaldsskóla á höfuð-
borgarsvæðinu með glærukynningu og dreifðu veggspjöldum og bæktingum.
Fétagsvísindadeild bauð skólameisturum, varaskólameisturum og námsráðgjöf-
um framhaldsskóla á landinu til fundar föstudaginn 22. apríl. í tjósi þeirra breyt-
inga sem voru fyrirhugaðar á lögum um framhatdsskóla taldi deildin brýnt að
hefja umræður um hvernig best væri að styrkja tengsl hennar við framhaldskól-
ana. A fundinum voru kynntar námsgreinar í deildinni og fjallað um hvaða undir-
búning deildin telur æskilegan fyrir nám í deildinni.
Föstudaginn 11. mars var opnað nýtt vefsetur í fötlunarfræðum við Háskóla ís-
lands. Árni Magnússon, fétagsmálaráðherra. og Ólöf Inga Halldórsdóttir, ung
hreyfihömluð kona og nýútskrifaður grunnskólakennari, opnuðu vefsetrið form-
tega og fór athöfnin fram í Norræna húsinu. Vefsetur í fötlunarfræðum
(http://www.fotlunarfraedi.hi.is) er hið fyrsta sinnar tegundar hér á landi og er
starfrækt í tengslum við framhatdsnám í fötlunarfræði við félagsvísindadeitd Há-
skóla íslands.
Rannsóknir
Kennarar í félagsvísindadeild hafa á undanförnum árum verið afkastamiklir við
fannsóknir og ritstörf. Rannsóknir þeirra hafa birst í sérstökum bókum, í ístensk-
um og alþjóðlegum fræðitímaritum og safnverkum.
Á árinu vann stofnunin ýmis verkefni fyrir opinberar stofnanir og einkaaðila.
Reksturinn gekk vel og var hagnaður af honum í árslok.
Við deildina starfar Félagsvísindastofnun sem hefur það markmið að auka tengsl
Háskólans við atvinnulífið og efla jafnframt fræðilegar rannsóknir í félagsvísind-
um.
Stjórn stofnunarskipuðu: Friðrik H. Jónsson, Ótafur Þ. Harðarson. Indriði Indriða-
s°n, Ágústa Pálsdóttir, Guðný Björk Eydat, Sigrún Aðatbjarnardóttir, Gísti Pálsson,
Stefán Ólafsson og Kristjana Stella Blöndal.
Starfsmenn á árinu 2005 voru: Andrea Gerður Dofradóttir, verkefnastjóri. Einar
Mar Þórðarson, verkefnastjóri, Eva Heiða Önnudóttir, verkefnastjóri, Guðlaug Júlía
Sturludóttir verkefnastjóri, Heiður Hrund Jónsdóttir, verkefnastjóri. Hitdur Svav-
arsdóttir. verkefnastjóri (lét af störfum í september). Kristín Erla Harðardóttir
verkefnastjóri. Kristjana Stelta Btöndal, verkefnastjóri og Pétur Maack Þorsteins-
son (lét af störfum í júní).
Rannsóknastofa um vinnuvernd. Rannsóknastofa um þróun menntamála, Rann-
sóknastofa um þjóðmál. Rannsóknastofa um fjölmiðlarannsóknir, Rannsóknar-
setur í fötlunarfræði, Mannfræðistofnun og Rannsóknarsetur í barna- og fjöl-
skylduvernd starfa innan vébanda Félagsvísindastofnunar skv. 1. mgr. reglna um
Félagsvísindastofnun.
Friðrik H. Jónsson, dósent í sálfræði. var forstöðumaður stofnunarinnar.
Félagsvísindadeild á aðild að Alþjóðamálastofnun og hýsir hana. Rannsóknastofu
i kvenna- og kynjafræðum. Deildin átti aðild að Sjávarútvegsstofnun og Umhverf-
'sstofnun. Þær stofnanir voru sameinaðar í Stofnun Sæmundar fróða árið 2005 og
deildin á nú aðild að henni.