Árbók Háskóla Íslands - 30.12.2005, Blaðsíða 100
Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála starfar við stjórnmálafræðiskor. Að stofn-
uninni standa. auk Háskóla íslands, Reykjavíkurborg og Landspítali-háskóla-
sjúkrahús. Stofnunin starfar í nánum tengslum við fyrirtæki. stofnanir og samtök,
innlend sem erlend. eftir því sem tilefni gefast. Meginmarkmið stofnunarinnar er
að efla kennslu og rannsóknir í stjórnun opinberra stofnana. bæði ríkis og sveit-
arfélaga. Stofnuninni er enn fremur ætlað að vera vettvangur umræðna um
stjórnmál. stefnumörkun og stjórnun í opinberum rekstri, þar á meðal um htut-
verk fjötmiðla og hagsmunahópa í opinberri stefnumörkun. Forstöðumaður stofn-
unar var Margrét S. Björnsdóttir
Doktorsvörn í uppeldis- og menntunarfræði
frá félagsvísindadeild
Snæfríður Þóra Egilson. lektor í iðjuþjálfun við Háskótann á Akureyri. varði dokt-
orsritgerð sína: School Participation: lcetandic Students with Physical Impair-
ments (Þátttaka nemenda með hreyfihömlun í skótastarfi) þann 25. nóvember.
Andmætendur voru dr. Gwynnyth Llewellyn, prófessor við University of Sydney og
dr. Grétar Marinósson. prófessor við Kennaraháskóla íslands.
Doktorsvarnir kennara í félagsvísindadeild
Þann 30. nóvember varði Hanna Björg Sigurjónsdóttir, lektor í fötlunarfræði,
doktorsritgerð sína við University of Sheffietd í Bretlandi.
Þann 9. desember varði Ágústa Pátsdóttir. lektor í bókasafns- og upplýsingafræði.
doktorsritgerð sína við Ábo Academy University í Finnlandi.
Þann 16. desember varði Guðný Björk Eydat, lektor í félagsráðgjöf, doktorsritgerð
sína við Socilogiska Institutionen (félagsfræðideild) við háskólann í Gautaborg í
Svíþjóð.
í árstok voru 46 af 49 föstum kennurum deildarinnar með doktorsgráðu.
Kennarar deildarinnar hafa margvísteg samskipti og samstarf við ertendar stofn-
anir og fræðimenn. Áhugi nemenda á því að stunda htuta náms erlendis á vegum
Erasmus og Nordplus fer vaxandi.
Kennaraskipti
Penelope Lisi, prófessor við Central Connecticut State University, kenndi við upp-
etdis- og menntunarfræðiskor í marsmánuði.
Daíthí Ó hógáin, dósent í þjóðfræði við University College í Dublin, hélt námskeið
um forn írskarsögur og hetjufræði á vegum þjóðfræði í ágúst.
Dr. Gwynnyth Llewellyn, prófessor við University of Sydney hélt námsstefnu í fötl-
unarfræði í nóvember sem hét Gott veganesti og fjatlaði um aðstoð við seinfæra
foreldra og börn þeirra.
Gjafir
Þann 11. nóvember afhenti Sigríður Dúna Kristmundsdóttir. prófessor í mann-
fræði, Landsbókasafni- Háskólabókasafni bókagjöf hjónanna Atfred og Grace
Gredys Harris en hjá þeim nam hún mannfræði við háskólann í Rochester. Um er
að ræða gott safn rita í mannfræði eða alls um 3.400 titta auk tímarita en mörg
þessara rita eru nú ófáanleg nema á söfnum. í gjöfinni er að finna ýmis grunnrit
félagsvísindanna sem nýtast munu öllum greinum deildarinnar.
Styrkir og samningar
Gerðirvoru samstarfssamningar við bókasöfn og upplýsingamiðstöðvar á höfuð-
borgarsvæðinu og víðar. Samstarfið felur í sér vettvangsnám nemenda í bóka-
safns- og upplýsingafræði. á bókasöfunum og ýmis konar verkefnavinnu fyrir
söfnin.
Styrkur Félagsþjónustunnar í Reykjavík til karla í námi í félagsráðgjöf var veittur í
6. sinn þann 23. nóvember. Tveir hlutu styrkinn að þessu sinni. þeir Kristinn Diego
og Þórarinn Þórarinsson.
Málþing og ráðstefnur
• Þann 3. febrúar hélt fétagsráðgjafarskor málþing undir heitinu Félagsráðgjöf:
Fagþróun í námi og starfi í tilefni 60. ára afmælis Sigrúnar Júlíusdóttur, próf-
essors í fétagsráðgjöf.
• Málþing um kenningar franska félagsvísindamannsins Pierre Bourdieu var
96