Árbók Háskóla Íslands - 30.12.2005, Blaðsíða 104
skeiðum er fólk þjálfað í því að nota ýmsar meginreglur atferlisfræði við uppeldi
barna. Á árinu 2005 voru 19 námskeið haldin fyrir foretdra og fagfólk (kennara og
leikskólakennara) bæði á höfuðborgarsvæðinu og utan þess.
Starfsfólk
Starfslið Félagsvísindastofnunar í regtubundnu starfi árið 2005 var sem hér segin
Andrea G. Dofradóttir, Einar Mar Þórðarson. Ella Björt Teague. Guðlaug J. Sturtu-
dóttir. Guðrún Lilja Eysteinsdóttir. Heiður Hrund Jónsdóttir, Hildur B. Svavarsdóttir.
Kristín Erla Harðardóttir og Kristjana Stella Btöndal.
Veffang Félagsvísindastofnunar en www.felagsvisindastofnun.is.
Stofnun stjórnsýslufræða
og stjórnmála
I reglum sem samþykktar voru í félagsvísindadeild 27. maí, 2002 segir í 1. gr.:
..Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála er rannsókna-, fræðslu- og þjónustu-
stofnun sem starfrækt er af Háskóla (slands. Stofnunin er vettvangur samstarfs
Háskóla íslands við opinbera aðila um eflingu náms og rannsókna um stjórnun
opinberra stofnana, bæði ríkis og sveitarfélaga og vettvangur umræðna um
stjórnmál og stjórnsýslu."
Stjórn stofnunarinnar hefur verið óbreytt. formaður er Gunnar Hetgi Kristinsson
prófessor og forstöðumaður er einnig sá sami frá upphafi. Margrét S. Björnsdótt-
ir. Stofnunin hefur aðsetur í Odda. húsi félagsvísindadeildar.
Samstarfsvettvangur, samstarfsaðilar
Stofnunin er rekin í samstarfi við Reykjavíkurborg og Landspítala - háskóla-
sjúkrahús. auk þess sem stofnunin hefur víðtækt samstarf við fyrirtæki. stofnanir
og samtök. innlend sem erlend, eftir því sem tilefni gefast. Stofnunin er sam-
starfsvettvangur kennara í stjórnsýslu- og stjórnmálafræðum við stjórnmála-
fræðiskor og í gegnum stofnunina eru þeir í samstarfi við fjötmarga aðila utan HÍ.
svo sem embætti umboðsmanns Alþingis. Ríkisendurskoðun. forsætis-. fjármála-
og utanríkisráðuneyti. Félag forstöðumanna ríkisstofnana, Samband íslenskra
sveitarfélaga, erlend sendiráð, ýmsar opinberar stofnanir og ráðgjafarfyrirtæki
sem vinna með opinberum aðilum.
Ráðstefnur. málþing, fræðsluverkefni
Eitt verkefna stofnunarinnar er að skapa umræðu- og fræðsluvettvang fyrir fag-
og áhugafólk um stjórnsýslu og stjórnmál. Sem fyrr var haldinn í þeim tilgangi
fjöldi opinna fyrirtestra. mátþinga og námskeiða, m.a. í samstarfi við Endur-
menntun H(. ráðuneyti. sveitarfélög. stofnanir, ráðgjafafyrirtæki og samtök. Fjöldi
erlendra fyrirlesara tók þátt. auk innlendra fag- og fræðimanna. Hér er aðeins
getið stærri viðburða sem snerta kjarnasvið stofnunarinnar:
• Lýðræðisþróun í sveitarfélögum. 20. janúar.
• Arðsemi opinberrar stjórnsýslu, 9. mars,
• Breytingar í lagaumhverfi opinberra innkaupa-nýjar ESB tilskipanir, 28. apríl.
• Hvað voru þeir að hugsa? Um úrslit bresku þingkosninganna. 6. maí,
• Hið opinbera sem kaupandi, 23. maí.
• Stjórnsýsla 21. aldar. 24. maí.
• Norrænt frumkvæði tit friðar. 7. júní.
• Þjóðaratkvæðagreiðslur. 11. ágúst.
• Hnattvæðing og þekkingarþjóðfélag: áhrif á íslenskt samfélag, 18. október,
• Stofnanamenning: hvernig má gera stofnanabrag opinberra stofnana sem
áhrifaríkastan? 19. október.
• Framtíðarþróun Evrópusambandsins: lykilspurningar, 21. október,
• Lýðræði og vilji fólksins - þjóðaratkvæðagreiðslur og áhrif þeirra. 29.
október,
• Hlutverk stéttarfélaga í tjósi aukins sjálfstæðis ríkisstofnana. 9. nóvember,
• Hvenær gilda stjórnsýslutög? Hvaða ákvarðanir eru stjórnsýsluákvarðanir?
11. nóvember,
• Betri stjórnendun góðir starfshættir stjórnenda í opinberum rekstri, 22.
nóvember.
• Staðbundið lýðræði. 2. desember.
100