Árbók Háskóla Íslands - 30.12.2005, Blaðsíða 114
Rannsóknastofnun í
hjúkrunarfræði
Stjórn og starfslið
Stjórn Rannsóknastofnunar árið 2005 var skipuð Herdísi Sveinsdóttur, prófessor,
formanni og Sóleyju S. Bender, dósent, úr hópi fastráðinna kennara við hjúkrun-
arfræðideild og Helgu Bragadóttur, sviðsstjóra á Landspítala-háskólasjúkrahúsi
(LSH), til 1. október og Hrund Sch. Thorsteinsson. sviðsstjóra LSH, frá 1. október,
tilnefndar af hjúkrunarforstjóra LSH. Helga Gottfreðsdóttir, tektor, var skipuð
varamaður.
Starfsmenn stofnunarinnar voru Margrét Lúðvíksdóttir í 20% starfi ritara til 10.
júní. Ragnar Ótafsson, sálfræðingur í 50% starfi sérfræðings til 1. maí. Þóra Jenný
Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur í 40% starfi verkefnisstjóra frá 1. mars til 1.
ágúst, Lára Kristín Sturludóttir í 10% starfi verkefnisstjóra frá 1. október og Helga
Bragadóttir, hjúkrunarfræðingur og tektor í 63% starfi forstöðumanns frá 1. októb-
er.
Starfsemin
Rannsóknastofnun í hjúkrunarfræði vinnur samkvæmt reglum um Rannsókna-
stofnun í hjúkrunarfræði við Háskóla íslands og Landspítala-háskólasjúkrahús
frá 22. september 2004. Aðalviðfangsefni stofnunarinnar er að styðja við og efla
rannsóknir kennara við hjúkrunarfræðideild og hjúkrunarfræðinga og tjósmæðra
á Landspítala-háskólasjúkrahúsi.
Stjórn Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði leggur ríka áherslu á að bjóða rann-
sakendum í hjúkrunarfræði og tjósmóðurfræði þjónustu til að auðvelda þeim
vinnu að framgangi og útgáfu verka sinna. Stefnt er að því að stofnunin búi yfir
úrræðum og geti vísað fólki á viðeigandi aðila sem geta veitt aðstoð t.d. sérfræð-
inga í ólíkum tölfræðiaðferðum. yfirlesara og aðstoðarmenn. Stofnunin leitast ein-
nig við að bæta aðstöðu til rannsókna í samræmi við þarfir kennara/hjúkrunar-
rannsakenda og veitir kennurum /hjúkrunarrannsakendum aðstoð við að birta
niðurstöður sínar.
Fræðsla og útgáfa
Unnið hefur verið að því að efla útgáfu á vegum Rannsóknastofnunar í hjúkrunar-
fræði. Vorið 2005 gaf stofnunin út rannsóknaskýrslu Jóhönnu Bernharðsdóttur.
lektors í hjúkrunarfræðideild og Ástu Snorradóttur og Rannveigar Þallar Þórs-
dóttur. hjúkrunarfræðinga á LSH. í skýrslunni er gerð grein fyrir rannsókn á tíðni
og eðli sálrænna vandamála hjá sjúklingum og aðstandendum og þörf þeirra fyrir
ráðgjöf frá geðhjúkrunarfræðingi.
Stofnunin styrkti útgáfu á bók Kristínar Björnsdóttur, dósents við hjúkrunarfræði-
deitd. Bókin ber heitið Líkami og Sál: Hugmyndir. þekking og aðferðir í hjúkrun.
Bókin var á meðal 10 rita sem titnefnd voru til verðtauna Hagþenkis sem framúr-
skarandi fræðirit.
Þjónusturannsókn var unnin fyrir Sjálfsbjörgu og voru niðurstöður hennar gefnar
út í skýrslunni: Viðhorf þjónustuþega til heimahjúkrunar og félagslegrar heima-
þjónustu; Viðhorfskönnun meðal félagsmanna Sjálfsbjargar.
Rannsóknastofnun í hjúkrunarfræði stóð fyrir opinberum erindum, málstofum.
ráðstefnum. málþingum og umræðufundum. Árið 2005 voru haldin tvö opinber
erindi og 11 málstofur.
Rannsóknastofnun í hjúkrunarfræði hélt ráðstefnuna Frá skitningi til aðgerða:
þekkingarþróun í hjúkrunarfræði. 24. maí í Norræna húsinu. Ráðstefnan var liður
í undirbúningi að útgáfu bókar hjúkrunarfræðideildar sem kemur út 2006. Kenn-
arar kynntu framtag sitt til bókarinnar.
Dr. Marcia Von Riper, dósent við háskótann í Chapel Hill í Norður-Karólínu ríki í
Bandaríkjunum, stýrði vinnusmiðju Rannsóknastofnunar um genafræði 17. mars.
Yfirskrift vinnusmiðjunnar var Strategies for Integrating Genetics into the Curric-
ula. Kennurum hjúkrunarfræðideildar. sérfræðingum í hjúkrun við LSH og hjúkr-
unarfræðingum á fræðasviðum sem tengjast genafræði var boðið til vinnusmiðj-
unnar.
110