Árbók Háskóla Íslands - 30.12.2005, Blaðsíða 144
Læknadeild og
fræðasvið hennar
Læknisfræðiskor
Almennt
Læknadeild starfar í þremur skorum. læknisfræði. sjúkraþjálfun og nýrri skor.
geisla- og tífeindafræði. sem stofnað var til á árinu. í upphafi árs var deildarráð
óbreytt frá fyrra ári undir stjórn forseta tæknadeildar. Stefáns B. Sigurðssonar,
prófessors, og Kristjáns Erlendssonar, dósents, sem tóku við 1. júlí 2003. Aðrir
futltrúar deildarráðs voru þau Hannes Pétursson. prófessor. Karl G. Kristinsson,
prófessor. Ásgeir Haraldsson. prófessor. Jón Jóhannes Jónsson. dósent. Bryndís
Benediktsdóttir, dósent og Árni Árnason, dósent. skorarformaður sjúkraþjálfunar-
skorar, auk tveggja fulltrúa stúdenta úr hópi læknanema. Hinn 1. júlí 2005 kom
Jónas Magnússon, prófessor, til starfa í deildarráði í stað Hannesar Péturssonar,
prófessors, sem hætti að eigin ósk 1. júlí.
Sjúkraþjálfunarskor hefur sérstaka skorarstjórn: (sjá einnig sérstaka umfjöllun
um þá skor). Deildarforseti situr skorarfundi sjúkraþjálfunarskorar.
Geisla- og lífeindafræðiskor hóf störf á árinu. Var í fyrsta sinn hafin kennsla fyrir
fyrsta árs nema í september 2005 og var kennslan í höndum kennara læknadeild-
ar auk stundakennara. Fyrstu fastráðnu kennararnir hófu störf í lok ársins. Nám-
ið er áætlað sem 3ja ára nám tit BS-prófs að viðbættum tveimur árum til MS-
prófs. Ljúka þarf fyrra ári í MS-námi til að fá starfsréttindi sem geislafræðingur
og lífeindafræðingur. Kennslan er í Ármúla 30 fyrst í stað.
Um mitt ár hófst undirbúningur að þverfaglegu námi í lýðheilsufræði undir stjórn
Haralds Briems, dósents í heilbrigðisfræði. Áætlað er að námið geti hafist vetur-
inn 2006/2007.
Skrifstofa læknadeildar sem jafnframt er skrifstofa læknisfræðiskorar er í
Læknagarði. Þar starfa skrifstofustjóri, deildarstjóri, fulltrúi og rekstrarstjóri (60%
starfi, sem er auk þess í 40% starfi hjá tannlæknadeild.
Starfsfólk
Við læknisfræðiskor störfuðu á árinu 86 fastráðnir kennarar. þar af 60 í hlutastörf-
um (37-50%). Fastráðnu kennararnir voru í ársbyrjun 29 prófessorar. einn lét af
störfum fyrir aldurssakir á árinu. 50 dósentar og 6 lektorar. Aðjúnktar (lítið hluta-
starf) voru 53. Hlutastörf klínískra kennara við læknadeildina (yfirleitt 37% og 50%
og til 5 ára) eru yfirleitt tengd a.m.k. 50% starfi á sama fræðasviði á Landspítala-
háskólasjúkrahúsi (LSH) eða annarri stofnun sem læknadeildin hefur samstarfs-
samning við (samhliða störf).
Jón Friðrik Sigurðsson var ráðinn í 50% dósentsstarf í sálarfræði.
Tveir læknar við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri voru nýráðnir sem kennarar,
Gunnar Þór Gunnarsson í 37% lektorsstarf í lyftæknisfræði og Þorvaldur Ingvars-
son í 37% dósentsstarf handlæknisfræði.
Kristín Ólafsdóttir var ráðin í 37% starf dósents í lyfjahvarfafræði.
Díana Óskarsdóttir var ráðin í 50% aðjúnktsstarf í geislafræði við geisla- og líf-
eindafræðiskor.
Fjárveitingar og útgjöld læknisfræðiskorar
2003-2005 (þús. kr.). 2003 2004 2005
Útgjöld (nettó) 486.183 324.865 332.846
Fjárveiting 293.158 295.535 339.792
140