Árbók Háskóla Íslands - 30.12.2005, Blaðsíða 191
Útgáfa
Vísindatímarit deildarinnar sem ber heitið Tímarit um viðskipti og efnahagsmál
hélt áfram göngu sinni og voru birtar fjórar greinar í tímaritinu 2005.
Bækurnar Stundarhagur eftir Guðmund Magnússon. prófessor. Tveir heimar eftir
Þorvald Gylfason, prófessor, Rekstrarhagfræði eftir Ágúst Einarsson prófessor og
Technology in Society - Society in Technology, Tæknin í samfélaginu - samfélagið
í tækninni í ritstjórn Amar D. Jónssonar. prófessors og Edward H. Huijbens. land-
fræðings, komu út 2005 á vegum deildarinnar.
Ráðstefnur, erlendir fyrirlesarar og heimsóknir
• Þórður Sverrisson. forstjóri Nýherja. hétt fyrirlestur fyrir nemendur á nám-
skeiðunum Stjórnun II. Stjórnun III og Stefnumótun fyrirtækja fimmtudaginn
10. febrúar 2005.
• Árni Þór Árnason, forstjóri Austurbakka, hélt opinn fyrirlestur fimmtudaginn
24. febrúar 2005.
• Andri Teitsson, framkvæmdastjóri KEA, hélt opinn fyrirlestur 17. mars. Há-
skóli íslands og Manitoba háskóli héldu sameiginlega ráðstefnu undiryfir-
skriftinni Culture and Science: Mutually Reinforcing. 18. og 19. mars 2005.
• Gunnlaugur M. Sigmundsson, forstjóri Kögunar, hélt opinn fyrirlestur 7. apríl
2005.
• Samnorræn ráðstefna um stjórnmálahagfræði. stjórnun og átök var haldin
föstudaginn 8. apríl 2005.
• Baldur Guðnason, forstjóri Eimskips. hélt opinn fyrirlestur 12. apríl. Hann
fjallaði um reynslu sína af rekstri og stjórnun fyrirtækja og starfi sínu sem
forstjóri Eimskips.
• Morgunverðarfundur um rekstrarstjórnun. Viðskipta- og hagfræðideild hélt
morgunverðarfund 20. apríl undir yfirskriftinni Rekstrarstjórnun í dagsins
önn.
• Hinn 2. maí flutti Roderick Floud. rektor London Metropolitan University, op-
inn fyrirlestur í Odda um hagvöxt. heilsufar og líkamsburði.
• Ólafur Páll Magnússon ftutti erindið Vörustjórnun - staða vörubretta í inn-
flutningi og framtíðarhorfur í opnum fyrirlestri 18. maí 2005.
• Þann 27. maí hélt dr. Michaet Power. prófessor í reikningshaldi við London
School of Economics. fyrirlestur um vöxt eftirlitsiðnaðarins og aukið umfang
endurskoðunar.
• Deildin hélt í samvinnu við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn. CBS, ell-
eftu norrænu ráðstefnuna um alþjóðaviðskipti er haldin var á Skeiðum í Ár-
nessýslu 25. til 27. maí 2005.
• David Cairns, einn helsti sérfræðingur heims í reikningsskilastöðlum alþjóð-
lega reikningsskilaráðsins og prófessor í endurskoðun við London School of
Economics hélt opinn fyrirlestur á vegum viðskipta- og hagfræðideildar 30.
maí 2005.
• Norræn ráðstefna um atvinnuvegahagfræði (Norio V) var haldin á vegum við-
skipta- og hagfræðideildar dagana 3. og 4. júní 2005.
• Laugardaginn 1. október 2005 var haldin ráðstefna á vegum viðskipta- og
hagfræðideildar Háskóla íslands í samvinnu við Viðskiptaháskótann í Kaup-
mannahöfn. Listaháskóla íslands og Iðntæknistofnun. Ráðstefnan baryfir-
skriftina Skapandi atvinnugreinar- Þýðing þeirra fyrir hagvöxt og velmegun
á fslandi. Tíu fyrirlesarar frá íslandi, Brettandi og Danmörku fluttu þar erindi.
• Þjóðarspegillinn 2005: Rannsóknir í félagsvísindum VI.
• Opin ráðstefna um rannsóknir í félagsvísindum VI var haldin föstudaginn 28.
október í samvinnu við tagadeild og félagsvísindadeild.
• Fræðslufundur um fríverslunarsamninga var hatdinn mánudaginn 14. nóv-
ember. Fyrirlesari var Pétur G. Thorsteinsson, varaframkvæmdastjóri EFTA.
Styrkir og verðlaun
Deildin naut áfram dýrmæts stuðnings frá ýmsum fyrirtækjum. Ýmist fékk deildin
styrki beint eða fyrir tilstuðlan Hollvinafétags deildarinnar.
• Grandi hf. var áfram aðalstyrktaraðili veftímarits deildarinnar um viðskipti og
efnahagsmál.
• Landsbanki (slands veitti þrenn verðlaun fyrir bestu viðskiptahugmyndirnar
sem fram komu hjá nemendum í námskeiðinu Viðskiptahugmyndum og voru
verðlaunin veitt á ársfundi deitdarinnar.
• Linda Garðarsdóttir í BS-námi í hagfræði hlaut verðlaun Holtvinafélags deild-
arinnar fyrir hæstu meðaleinkunn í prófum fyrsta árs á skóiaárinu 2003 -
2004 og voru verðlaunin veitt á ársfundi deildarinnar í byrjun árs 2005.
• Deitdin veitti. í samvinnu við Hollvinafétag deildarinnar, verðlaun fyrir hæstu
meðaleinkunn í grunnnámi við brautskráningu í júní 2005. Verðtaunin hlaut
Jóhanna Bergsteinsdóttir sem útskrifaðist með BS próf í hagfræði.